Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Freyja Þórisdóttir skrifar 30. ágúst 2026 22:27 Það var augljóst áhorfendum Silfursins að það andar ansi köldu á milli þeirra Kristrúnar og Guðrúnar. Vísir/Vilhelm Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Valkyrjur hafa tapað kosningunum sem fram fóru í gær, þær séu ekki með nokkru móti sigurvegarar. Hún segir kosningabaráttu SJÁ hafa verið á skjön við það sem forsætisráðherra hefur áður sagt í þinginu. Sú síðarnefnda biðlar til stjórnarandstöðunnar að sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr um hvað málið snúist.
Formenn stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi mættust í Silfrinu á Rúv nú þegar niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið liggja fyrir. Skoðanakannanir höfðu sýnt að þjóðin væri klofin í afstöðu sinni til spurningarinnar á kjörseðlinum en upp úr kjörkössunum komu tölurnar 46,95 prósent já og 53,05 prósent nei. Stolt af þjóðinni Í upphafi þáttar sammæltust gestirnir um að þjóðin hefði verið til fyrirmyndar hvað varðar metkjörsókn en hún var 82,6 prósent í gær sem er mesta þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu í sögu lýðveldisins. Þegar leið á þáttinn færðist meiri harka í leikinn og þá sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, meðal annars að þjóðaratkvæðagreiðslan hefði verið til þess hugsuð að fá fram samtal, allar umræður um „barbabrellur og popúlismi og allt þetta“ þyrftu að vera slegnar út af borðinu. Þáttastjórnandi bar því næst upp spurningu sem sneri að EES-samningnum og mögulegu óbreyttu ástandi. Ekkert nema eftiráskýringar Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins lét spurninguna sem vind um eyrun þjóta og beindi sér að þeim Ingu Sæland, Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Þær sakaði hún um að vera með eftiráskýringar. „Það er náttúrulega alveg stórkostlegt að heyra núna eftiráskýringar Valkyrjanna varðandi gærdaginn,“ sagði hún. „Þær tala hér um að þetta sé mikill sigur. Inga Sæland, þið töpuðuð þessum kosningum“ Inga svaraði að vörmu: „Þetta var sigur fyrir þjóðina, það var ekki verið að kjósa um okkur, við skulum átta okkur á því.“ Guðrún hélt svo ótrauð áfram og sagði: „Þegar Þorgerður Katrín talar svo hér um að þetta hafi verið kosning um að sjá samning, það er rangt. Þið voruð að keyra hér kosningabaráttu „Já til að sjá“ en svo segir Kristrún Frostadóttir í þinginu að þjóðin fái ekki að sjá samning...“ Þær Þorgerður og Kristrún voru áberandi vonsviknar yfir þessum ummælum Guðrúnar. Sú síðarnefnda sagði athugasemdir sem þessar algjörlega óþarfar að lokinni atkvæðagreiðslu. „Við erum ekki á þeim stað að það sé þörf á að snúa lengur út úr, þú veist algjörlega um hvað þetta snerist og hvað ég meinti en mér finnst bara allt í lagi þegar við erum komin á þennan stað að við sýnum þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr hvað þetta snerist,“ sagði Kristrún.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Viðreisn Samfylkingin Flokkur fólksins Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Nei-hliðin vann á ástríðunni Stjórnmálafræðingur segir að niðurstöðu kosninganna megi skýra af því að já-hliðin hafi einblínt um of á tæknilegar útfærslur á meðan ástríða hafi fengið að ríkja nei-megin. Þjóðernisíhaldssemi var áberandi í kosningabaráttunni og útilokað þykir að niðurstaðan leiði til afsagnar ríkisstjórnarinnar. 30. ágúst 2026 15:31 Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar, segir að sjálfur hefði hann ekki flýtt þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Hann segir ESB líklega enn vilja Ísland inn og telur ólíklegt að þau láti Ísland finna fyrir því fyrir að hafna sambandinu í gær. 30. ágúst 2026 18:30 „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Niðurstaða þjóðaratkvæðisins hefur verið til umfjöllunar á evrópskum miðlum í dag. Heilt yfir eru miðlar sammála um helstu deiluatriði kosningabaráttunnar þar sem já-hliðin tali um kjör almennings á meðan nei-hliðin tefli fram fullveldisrökum og sjávarútvegsmálum. Einhverjir miðlar segja að Ísland hafi með þessu „loka dyrunum“ og aðrir segja niðurstöðuna vonbrigði eða jafnvel bakslag fyrir ESB. 30. ágúst 2026 17:02 Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Íslendingar hafa hafnað áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Lokatölur voru 46,95 prósent já og 53,05 prósent nei. 30. ágúst 2026 09:32 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira
Nei-hliðin vann á ástríðunni Stjórnmálafræðingur segir að niðurstöðu kosninganna megi skýra af því að já-hliðin hafi einblínt um of á tæknilegar útfærslur á meðan ástríða hafi fengið að ríkja nei-megin. Þjóðernisíhaldssemi var áberandi í kosningabaráttunni og útilokað þykir að niðurstaðan leiði til afsagnar ríkisstjórnarinnar. 30. ágúst 2026 15:31
Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar, segir að sjálfur hefði hann ekki flýtt þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Hann segir ESB líklega enn vilja Ísland inn og telur ólíklegt að þau láti Ísland finna fyrir því fyrir að hafna sambandinu í gær. 30. ágúst 2026 18:30
„Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Niðurstaða þjóðaratkvæðisins hefur verið til umfjöllunar á evrópskum miðlum í dag. Heilt yfir eru miðlar sammála um helstu deiluatriði kosningabaráttunnar þar sem já-hliðin tali um kjör almennings á meðan nei-hliðin tefli fram fullveldisrökum og sjávarútvegsmálum. Einhverjir miðlar segja að Ísland hafi með þessu „loka dyrunum“ og aðrir segja niðurstöðuna vonbrigði eða jafnvel bakslag fyrir ESB. 30. ágúst 2026 17:02
Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Íslendingar hafa hafnað áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Lokatölur voru 46,95 prósent já og 53,05 prósent nei. 30. ágúst 2026 09:32