Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Sigurgeir Þorkelsson skrifar 31. ágúst 2026 06:52 Kristinn Jónasson er lögmaður bíleigufyrirtækja sem fengið hafa óvænta rukkun frá Skattinum. Samsett Bílaleigufyrirtæki hafa leitað til lögmanns eftir að hafa borist rukkun frá Ríkisskattstjóra. Lögmaður segir að upphæðirnar geti skipt hundruðum milljóna og lýsir því hvernig rukkunin hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti fyrir mörg fyrirtæki. Hann óttast að málið geti leitt til fjöldagjaldþrota fari svo að stjórnvöld haldi því til streitu.
Rukkunin er fyrir virðisaukaskatt af vátryggingum sem fyrirtækin selja viðskiptavinum sínum aukalega þegar bíll er leigður. Rukkað er afturvirkt fyrir árin 2024 og 2025 með vöxtum og vaxtavöxtum. Kristinn Jónasson lögmaður gætir hagsmuna fyrirtækis sem fékk slíka rukkun. Honum finnst málið sérstakt og segir að það sé ekki vel undirbúið af hálfu stjórnvalda. „Það þarf að lyfta hverjum einasta steini áður en vaðið er í svona,“ segir hann. „Málshraðinn í málinu er hraður, það er ákefð í embættinu [Ríkisskattstjóra] sem kemur á óvart,“ segir Kristinn en upprunalegu bréfi frá Skattinum fylgdi fimmtán daga andmælafrestur. „Þetta eru tvær þrjár bílaleigur sem eru með á bilinu einn til einn og hálfan milljarð í endurákvarðaðan vask,“ segir Kristinn þegar hann er beðinn að nefna dæmi um upphæðir. Mikil óvissa er í rekstri fyrirtækjanna meðan beðið er niðurstöðunnar. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm „Þetta setur þær algjörlega á hausinn, ef þetta fer áfram,“ bætir hann við. Kristinn hefur áhyggjur af þeim margföldunaráhrifum sem það kynni að hafa innan efnahagslífsins ef einhver fyrirtækjanna færu á hausinn. „Þetta er gríðarlegt,“ segir Kristinn. „Þú færð vaskinn endurákvarðaðan á þig og svo kemur tíu prósenta álag og svo koma dráttarvextir ofan á alla fjárhæðina – og dráttarvextir verða sem sagt að vaxtavöxtum að ári liðnu,“ útskýrir hann. Í núverandi vaxtaumhverfi getur þetta þýtt að upphæð skuldarinnar tvöfaldist á fjórum árum. Rukkun Skattsins gildir fyrir tvö síðustu ár, 2024 og 2025, en heimild er fyrir að rukka allt að sex ár aftur í tímann. Þegar eru komnir vaxtavextir á allt árið 2024 og hálft árið 2025, segir Kristinn. „Þetta er ekki eitthvað sem við þurfum á að halda í núverandi ástandi,“ segir Kristinn en kurr hefur verið innan ferðaþjónustunnar síðustu misseri vegna stigmagnandi óvissu innan greinarinnar. Fyrirtæki geri sitt besta að fylgja reglum „Það ætlar enginn að vera rangstæður,“ segir Kristinn og segir sögu fyrirtækis sem sendi Skattinum fyrirspurn að eigin frumkvæði árið 2017 um hvernig það skyldi haga sínum málum þegar kæmi að sölu fyrrnefndra trygginga. Fyrirtækið fékk svör sem það fylgdi til hins ítrasta. Lögum um dreifingu vátrygginga var breytt 2019 en í kjölfar þeirra voru samþykktar breytingar á lögum um virðisaukaskatt til að samræma löggjöf og aftur lagaði fyrirtækið sig að regluverki hins opinbera. „Fyrirtækið aðlagaði sína dreifingarsamninga [á vátryggingum] að breyttri löggjöf, sem tók gildi 2019, og hefur síðan þá fylgt fyrirmælum Skattsins og ákvæðum laga um dreifingu vátrygginga til hins ítrasta.“ Þrátt fyrir alla viðleitni og vinnu téðs fyrirtækis er það í hópi þeirra sem fékk rukkun frá Skattinum. „Skatturinn hyggst núna leggja virðisaukaskatt á þennan aðila eins og hann hafi selt vátryggingar í eigin nafni, sem hann gerði ekki. Hann kemur á viðskiptasambandi milli vátryggingafélags og leigutaka bifreiðar,“ segir Kristinn. Þannig sé komið fram við bílaleigufyrirtækið eins og það sé sjálft tryggingafélagið þegar í raun sé í gildi skýr lagarammi um fyrirtækið sem dreifingaraðila vátrygginga, í umboði tryggingafélagsins. Starfsemi fyrirtækja sem dreifa vátryggingum í umboði tryggingarfélags er eftirlitsskyld og þurfa aðilar að vera skráðir hjá Seðlabankanum. Kristinn ber sölu bílaleiganna á tryggingunum saman við þegar raftækjaverslanir selja tryggingu aukalega ofan á keypta vöru, enda má á lista Seðlabankans yfir fyrirtæki sem hafa slíkt umboðsleyfi finna nokkrar raftækjaverslanir auk nokkurra tuga bílaleigufyrirtækja. Kristinn er vægast sagt undrandi á aðgerðum Skattsins í ljósi laga um virðisaukaskatt og í ljósi þeirrar staðreyndar að starfsemi fyrirtækjanna sætir eftirliti Seðlabankans. „Skatturinn setur með þessum aðgerðum sínum undir sama hatt þá sem selja vátryggingar í eigin nafni og þá aðila sem dreifa þeim og vísar þar í hæstaréttardóm frá árinu 2008,“ segir Kristinn. „Skatturinn virðir algjörlega að vettugi þetta regluverk sem Seðlabankinn á að hafa eftirlit með.“ „Þeir nota þennan hæstaréttardóm frá 2008 sem rökstuðning, þar sem bílaleiga var dæmd til að greiða virðisaukaskatt af vátryggingum sem hún seldi án þess að vera með nokkurn dreifingarsamning eða vera umboðsmaður vátryggingafélags,“ segir Kristinn. Hér sé um að ræða mál gjörólíkt stöðunni í dag. „Skatturinn byggir niðurstöðuna sína á því að viðkomandi bílaleigur séu að selja tryggingarnar í eigin nafni, eins og í hæstaréttardóminum 2008. Það er bara rangt, þær eru ekki að selja viðbótartryggingar í eigin nafni heldur eru að dreifa þeim fyrir hönd vátryggingafélags.“ Stór hluti ferðamanna nálgast bílaleigubíl fyrir Íslandsdvöl sína við komu á Keflavíkurflugvöll. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Bíða niðurstöðu Skattsins Senn líður að því að þrír mánuðir séu liðnir frá því að Skattinum bárust erindi frá Kristni og hans samstarfsfélögum. „Fyrstu stóru bréfin fóru út í lok maí, 29. maí,“ segir Kristinn og bætir því við að Skatturinn hafi níutíu daga samkvæmt stjórnsýslulögum til að svara erindum „Mínir umbjóðendur eru að endurhlaða Ísland.is á hverjum morgni í von um góðar fréttir,“ segir hann. „Við bara bíðum og vonum að þau hlusti á andmæli okkar umbjóðenda,“ segir lögmaðurinn, sem lýsir þó fullkominni óvissu um hvenær svör muni berast. Á meðan bíði skjólstæðingar hans milli vonar og ótta eftir niðurstöðu Skattsins.
Bílaleigur Efnahagsmál Skattar, tollar og gjöld Ferðaþjónusta Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Sjá meira