Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Birgir Olgeirsson skrifar 28. ágúst 2026 10:35 Duane „Keffe D“ Davis í réttarsal í Las Vegas. Davis steig ekki í vitnastúkuna áður en verjandi hans lauk málflutningi sínum í gær. Öllum vitnaleiðslum er lokið í réttarhöldunum yfir Duane „Keffe D“ Davis, eina manninum sem hefur verið ákærður vegna morðsins á rapparanum Tupac Shakur. Verjandi Davis segir hann hafa spunnið frásagnir um aðild sína til að græða peninga og vekja athygli.
Sky News greinir frá því að verandi Davis hafi kallað þrjú vitni og lokið málflutningi sínum á innan við þremur klukkustundum. Davis steig ekki sjálfur í vitnastúkuna. Lokaræður verða fluttar á mánudag og að þeim loknum tekur kviðdómur málið til úrlausnar. Davis, sem er 63 ára, neitar sök og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Málið byggist á orðum Davis Reuters segir ákæruvaldið byggja mál sitt nær alfarið á opinberum frásögnum Davis og því sem hann hefur sagt í einkasamtölum. Þær er meðal annars að finna í viðtölum, upptökum rannsakenda og bók hans frá árinu 2019. Davis hefur sagt að hann hafi setið í hvítri Cadillac bifreið sem ekið var upp að bíl Tupac aðfaranótt 8. september 1996. Hann hafi útvegað byssuna og rétt hana aftur í bílinn áður en skotið var á Tupac og Marion „Suge“ Knight. Á skjá í réttarsal má sjá mennina fjóra sem saksóknarar segja hafa verið í hvítu Cadillac bifreiðinni þegar skotið var á Tupac. Davis er sá eini þeirra sem enn er á lífi. Verjandinn Michael Sanft segir frásögnina uppspuna sem ætlað hafi verið að selja bækur og byggja upp orðspor Davis. Við upphaf réttarhaldanna birti hann orðið „kjaftæði“ á skjá fyrir aftan sig og spurði hvaða staðreyndir styddu sögu skjólstæðings síns. Saksóknarar segja Davis hafa skipulagt árásina til að hefna fyrir atlögu Tupac og fylgdarliðs hans að frænda Davis fyrr um kvöldið. AP fréttastofan greinir frá því að Davis geti verið sakfelldur þótt hann hafi ekki sjálfur hleypt af byssunni. Gat ekki staðfest frásögnina Dan Long, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður í Las Vegas, sagði fyrir dómi að honum hefði ekki tekist að staðfesta að Davis hefði verið í Cadillac bifreiðinni eða útvegað morðvopnið. Mynd af BMW bifreiðinni sem Tupac sat í þegar skotið var á hann var sýnd í réttarsalnum. Suge Knight ók bílnum og særðist lítillega í árásinni. Hann tók þó fram að nöfnin sem Davis gaf rannsakendum hefðu verið þau sömu og lögregla tengdi þegar við bifreiðina. AP rifjar upp að hvít Cadillac bifreið hafi ekið upp að BMW bifreið Suge Knight þegar þeir Tupac biðu á rauðu ljósi í Las Vegas. Tupac varð fyrir fjórum skotum og lést sex dögum síðar, 25 ára að aldri. Knight særðist lítillega. Hinir þrír mennirnir sem sagðir eru hafa verið í Cadillac bifreiðinni eru allir látnir.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Fleiri fréttir Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Sjá meira