Segja ESB hvorki geta tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 20:59 Margrét Einarsdóttir sérfræðingur í Evópurétti og prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík er einn þriggja höfunda að álitsgerð um náttúruauðlindir í tengslum við Evrópurétt. Vísir Sérfræðingur í Evrópurétti og einn höfunda álitsgerðar telur Íslendinga ekki þurfa að óttast að Evrópusambandið taki yfir vatns- eða orkuauðlindir landsins. Sama gildi um lagningu sæstrengs til Íslands. Ný auglýsing þar sem raunveruleg hætta er sögð á því að íslensk orka myndi streyma úr landi hefur vakið athygli.
Forsætisráðuneytið fékk þrjá lagaprófessora við Háskólann í Reykjavík, þau Gunnar Þór Pétursson, Hafstein Dan Kristjánsson og Margréti Einarsdóttur, til að vinna álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum í ljósi reglna Evrópuréttar, þ.á.m. orkuauðlindum. Ekki neins konar framsal á orkuauðlindum Í álitsgerðinni kemur fram að í orkulöggjöf Evrópusambandsins felist ekki „neins konar framsal á orkuauðlindum til ESB“. Auðlindin sjálf og arður af henni séu í höndum aðildarríkjanna eða, eftir atvikum, einkaaðila. Þá segir að ESB hafi hvorki heimild til að leggja sæstreng í óþökk aðildarríkis né til að skipa aðildarríki að leggja slíkan streng til að tengjast innri raforkumarkaði sambandsins. Gagnrýni Niðurstaða nefndarinnar hefur verið gagnrýnd. Því hefur verið velt upp í skoðanagrein í Morgunblaðinu hvort um þetta sé álitsgerð eða einhliða ESB-málflutningur. Þá líta forsvarsmenn hlaðvarpsins Þjóðmála svona á málið í auglýsingu: „Verður Íslandi stungið í samband? Sæstrengur myndi tengja Ísland við evrópska raforkukerfið. Íslensk orka myndi streyma úr landi, raforkuverð hækka og þrýstingur aukast á að virkja íslenska náttúru til að mæta orkuþörf Evrópu. Þetta er raunveruleg hætta,“ er meðal þess sem varað er við í auglýsingu á Bylgjunni í gær.“ Vatns- og orkuauðlindir í eigu aðildarríkjanna sjálfra Margrét Einarsdóttir, sérfræðingur í Evrópurétti og prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík og einn höfunda álitsgerðarinnar, segir þessar áhyggjur ekki eiga við rök að styðjast. Hún bendir á að Ísland sé nú þegar aðili að orkulöggjöf ESB að langmestu leyti í gegnum EES-samninginn. Þriðji orkupakki ESB hafi þegar verið tekinn upp í EES-samninginn og innleiddur í íslenskan rétt. Þá standi fyrir dyrum að innleiða fjórða orkupakkann að fullu. Ekkert af þessu hafi breytt eignar- og yfirráðarétti Íslendinga yfir orkuauðlindum. „Hvað varðar orkumálin þá erum við nú þegar aðilar að orkulöggjöf ESB að langmestu leyti. Svokallaður fjórði orkupakki, er enn í upptökuferli í EES-samninginn, þótt hluti hans hafi þegar verið tekinn þar upp. Þannig að allar fullyrðingar um að ESB eignist orkuna og vatnið eru rangar. Yfirráð yfir vatnsauðlindum og orkuauðlindum eru í eigu sjálfra aðildarríkjanna,“ segir Margrét. Höfundar álitsgerðarinnar telja jafnframt að ákvörðunin um hvort sæstrengur verður lagður milli Íslands og Evrópu sé á forræði Íslands. „Í okkar augum er algjörlega ljóst að ákvörðun um hvort sæstrengur yrði lagður milli Íslands og Evrópu, sé á forræði Íslendinga,“ segir Margrét. Margrét segist ekki hafa séð lögfræðiálit þar sem þessum niðurstöðum sé hafnað. „Nei, ég hef ekki séð það,“ segir Margrét.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Orkumál Vatnsaflsvirkjanir Landsvirkjun Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ Sjá meira