Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Kjartan Kjartansson skrifar 27. ágúst 2026 09:02 Sigurður Hannesson og félagar í Samtökum iðnaðarins eru ekki kátir með að Viðskiptaráð hafi ekki nefnt tækni- og hugverkaiðnaðinn sem eina af burðarstólpum íslensks útflutnings í skýrslu þrátt fyrir að hlutdeild hans sé á pari við sjávarafurðir. Vísir/Egill Samtök iðnaðarins krefja Viðskiptaráð um að það leiðrétti skýrslu sem það birti nýlega um íslenska hagkerfið. Ástæðan er sú að Viðskiptaráð nefndi ekki tækni- og hugverkaiðnaðinn sem fjórðu stoðina í útflutningi Íslands.
Tilefni athugasemdar Samtaka iðnaðarins er skýrslan „The Icelandic Economy 2026“ og örmyndband sem Viðskiptaráð birti á samfélagsmiðlum um íslenska hagkerfið. Í því lýsi ráðið sjávarútvegi, ferðaþjónustu og álframleiðslu sem þremur meginstoðum útflutnings Íslands. Samtök iðnaðarins segja þessa þrískiptu mynd hafa verið rétta fyrir tveimur áratugum en ekki lengur í tilkynningu sem þau sendu fjölmiðlum í morgun. „Hið rétta er að fjórar stoðir útflutnings skila 90% útflutningstekna. Viðskiptaráð getur ekki tækni- og hugverkaiðnaðar, þótt greinin hafi skilað 369 milljörðum króna í útflutningstekjur á síðasta ári og sé sú stoð sem gæti orðið sú verðmætasta á næstu árum,“ segir í tilkynningunni. Tækni- og hugverkaiðnaðurinn hafi staðið fyrir nítján prósentum af heildarútflutningstekjum hagkerfisins í fyrra. Útflutningstekjur iðnaðarins hafi áttfaldast frá árinu 2008. Til samanburðar standi orkusækinn iðnaður nú undir 21 prósenti útflutningsteknanna, ferðaþjónustan 32 prósentum og sjávarafurðir átján prósentum. „Samtök iðnaðarins hafa komið þessum athugasemdum á framfæri við Viðskiptaráð og hvetja þau til að leiðrétta þessar upplýsingar í umfjöllunum sínum um útflutningsstoðir Íslands,“ segir í tilkynningu samtakanna.
Stóriðja Tækni Tengdar fréttir Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Kennarar eru hvumsa yfir greiningu Viðskiptaráðs á skýrslu menntamálaráðuneytisins um námsárangur í framhaldsskólum eftir grunnskólum. Þeir segja aðferðafræðina ekki standast, aðeins hluti nemenda útskrifist á nákvæmlega þremur árum, munur sé á árgöngum og tölurnar því kolrangar, að þeirra sögn. Þá sé einungis um að ræða bóknám en enga nemendur í iðnnámi. 29. maí 2026 10:40 Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Formenn stéttarfélaganna BHM og BSRB gagnrýna harðlega úttekt Viðskiptaráðs á veikindarétti opinberra starfsmanna. Þær segja skýrsluna unna út frá misvísandi gögnum og að tillaga ráðsins um að færa veikindarétt opinberra starfsmanna til jafns við einkageirann sé ómanneskjuleg. 20. febrúar 2026 22:25 Vísar gagnrýni verkalýðsleiðtoga til föðurhúsanna Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs vísar athugasemdum formanns BSRB um úttekt ráðsins á veikindarétti opinberra starfsmanna á bug. Hann hafnar því að alvarlegar misfellur séu í greiningu ráðsins sem dregur þá ályktun að veikindaréttur þeirra geti verið sjöfaldur á við starfsmann með sama starfsaldur í einkageiranum. 22. febrúar 2026 13:33 Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Kennarar eru hvumsa yfir greiningu Viðskiptaráðs á skýrslu menntamálaráðuneytisins um námsárangur í framhaldsskólum eftir grunnskólum. Þeir segja aðferðafræðina ekki standast, aðeins hluti nemenda útskrifist á nákvæmlega þremur árum, munur sé á árgöngum og tölurnar því kolrangar, að þeirra sögn. Þá sé einungis um að ræða bóknám en enga nemendur í iðnnámi. 29. maí 2026 10:40
Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Formenn stéttarfélaganna BHM og BSRB gagnrýna harðlega úttekt Viðskiptaráðs á veikindarétti opinberra starfsmanna. Þær segja skýrsluna unna út frá misvísandi gögnum og að tillaga ráðsins um að færa veikindarétt opinberra starfsmanna til jafns við einkageirann sé ómanneskjuleg. 20. febrúar 2026 22:25
Vísar gagnrýni verkalýðsleiðtoga til föðurhúsanna Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs vísar athugasemdum formanns BSRB um úttekt ráðsins á veikindarétti opinberra starfsmanna á bug. Hann hafnar því að alvarlegar misfellur séu í greiningu ráðsins sem dregur þá ályktun að veikindaréttur þeirra geti verið sjöfaldur á við starfsmann með sama starfsaldur í einkageiranum. 22. febrúar 2026 13:33