Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Árni Sæberg skrifar 27. ágúst 2026 09:00 Hagstofa Íslands heldur utan um verðbólgutölur. Vísir/Vilhelm Verðbólga mælist 5,6 prósent í ágúst og hefur ekki verið meiri í tvö ár. Forsenduákvæði Stöðugleikasamninganna svokölluðu miðar við 4,7 prósenta verðbólgu í ágúst og því opnast heimild til að segja samningum upp þann 1. september.
Hagstofan birti niðurstöður verðmælinga ágústmánaðar á vef sínum klukkan 09. Þar segir að vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í ágúst 2026, sé 694,6 stig og hækki um 0,20 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis sé 553,8 stig og lækki um 0,02 prósent frá júlí 2026. Flugfargjöld lækkuðu um tæp tíu prósent Fataútsölur séu víða gengnar til baka og verð á fötum hafi hækkað um 4,1 prósent (áhrif á vísitöluna 0,10 prósent). Reiknuð húsaleiga hafi hækkað um 0,9 prósent (áhrif 0,18 prósent) og flugfargjöld til útlanda hafi lækkað um 9,6 prósent ( áhrif -0,34 prósent). Gjöld í háskóla hafi hækkað um 15,1 prósent (áhrif á vísitöluna 0,07 prósent) en sú hækkun sé að mestu leyti tilkomin vegna hækkunar skráningargjalds í opinberum háskólum úr 75.000 krónum í 100.000 krónum. Það gjald hafi síðast hækkað fyrir 12 árum. Síðastliðna tólf mánuði hafi vísitala neysluverðs hækkað um 5,6 prósent og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 5,2 prósent. Íslandsbanki sannspár Lengi hefur legið í loftinu að verðbólga myndi mælast yfir 4,7 prósenta viðmiði kjarasamninga en hagfræðingar Íslandsbanka spáðu því nýverið að verðbólga myndi mælast 5,6 prósent. Kollegar þeirra í Landsbankanum voru ívið bjartsýnni og spáðu 5,5 prósenta verðbólgu.
Verðlag Efnahagsmál Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Sjá meira