Skólaliðum sagt upp hjá borginni Eiður Þór Árnason skrifar 24. ágúst 2026 20:58 Kári Sigurðsson setur spurningamerki við það hvort þessum aðgerðum fylgi mikill fjárhagslegur sparnaður fyrir borgina. aðsend Hópi skólaliða hefur verið sagt upp störfum í grunnskólum Reykjavíkurborgar og þrifaverkefnum þeirra útvistað til einkafyrirtækja. Þá hefur starfshlutfall annarra verið skert.
Þetta segir Kári Sigurðsson, formaður stéttarfélagsins Sameykis. Enn sé unnið að því að ná utan um umfang aðgerðanna og borgin hafi ekki svarað fyrirspurn stéttarfélagsins. RÚV greindi fyrst frá. Kári fordæmir aðgerðirnar og segir þær í engu samræmi við yfirlýsingar borgarmeirihlutans um að grunnþjónustu verði hlíft í aðhaldsaðgerðum. Skólaliðar sinni ekki einungis þrifum og séu til staðar fyrir nemendur. Ljóst sé að starfsfólkið sem komi í staðinn verði ekki hluti af umhverfi barnanna með sama hætti. „Þarna eru börn og ungmenni að missa mikilvæga aðila í skólunum frá sér.“ Hefur áhrif á nítján skóla Í júlí samþykkti Innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar að taka tilboðum Daga og Sólar í þrif á fjölda skóla. „Þetta eru nítján skólar í heildina sem er verið að útvista þrifunum í,“ segir Kári. Þeirra á meðal eru Grandaskóli, Hagaskóli, Melaskóli, Brúarskóli, Hvassaleitisskóli, Vesturbæjarskóli og Klettaskóli. Kári bendir á að vinna við útboðið hafi byrjað í tíð fyrri borgarstjórnar. Hann bíður enn eftir því að fá staðfestar tölur um uppsagnir frá borginni og segir að fyrirspurn um aðhaldsaðgerðir hafi staðið ósvöruð frá því í byrjun júlí. Sé ekki í samræmi við fulyrðingar meirihlutans Kári segir þessar aðgerðir í engum takti við það sem fulltrúar meirihlutans hafi talað um. „Þarna ertu ekkert að minnka einhverja yfirbyggingu. Þarna ertu bara að ráðast beint að grunnþjónustunni, þú ert að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur hjá borginni. Þú ert að ráðast á nærþjónustuna þar sem þú ert með fólk sem er að vinna störf sem eru mjög mikilvæg og eru svo miklu meira heldur en bara störf við þrif í skólunum.“ Hann setur spurningamerki við það hvort þessum aðgerðum fylgi mikill fjárhagslegur sparnaður fyrir borgina. Skólaliðar séu ekki hálaunafólk og nýsamþykktir samningar um þrif í umræddum skólum hljóði upp á um 176 milljónir króna á ári. Fordæmir skort á svörum „Við erum mjög áhyggjufull yfir því þegar verið er að útvista svona verkefnum,“ segir Kári um afstöðu Sameykis og annarra stéttarfélaga starfsfólks í opinberri þjónustu. „Það er náttúrulega ekkert samráð og ég held að yfirsýnin sé afskaplega lítil einhvern veginn. Það er bara verið að pikka og plokka í eitthvað núna.“ Sameyki fari fram á að borgaryfirvöld rökstyðji þessa ákvörðun með greinagóðum hætti. Félagið hafi fyrst óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar aðhaldsaðgerðir í byrjun júlí. „Það er eiginlega bara óforskammað að vera ekki búið að svara þessu,“ segir Kári. „Ef það á að segja að þetta sé sparnaður, þá verður að sýna fram á að þetta sé sparnaður og að þetta sé ekki skerðing á grunnþjónustu í leiðinni. Vegna þess að þau voru mjög skýr um það í aðdraganda kosninganna og þegar þau tóku við. Ég get séð hvorugt í þessari aðgerð.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Skóla- og menntamál Borgarstjórn Vinnumarkaður Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Sjá meira