Viðskipti innlent

Högnuðust um hálfan annan milljarð

Agnar Már Másson skrifar
Guðni Aðalsteinsson er forstjóri Reita.
Guðni Aðalsteinsson er forstjóri Reita.

Reitir högnuðust um 1.567 milljónir króna á fyrri helmingi 2026. Þar af jukust leigutekjur um tólf prósent. Félagið gerir ráð fyrir því að tekjur í lok árs verði á milli nítján og tuttugu milljarða króna.

Reitir birtu í dag uppgjör sitt fyrir fyrri árshelming 2026. Þar segir að leigutekjur árshlutans hafi numið 9.884 milljónum króna sem sé 12,7 prósenta aukning milli ára, eða sem nemur 7,4% umfram verðlag.

Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu hafi numið 6.593 milljónum króna og aukist um 16,2 prósent, en matsbreyting er þegar bókfært verð fastafjármuna í ársreikningi er hækkað til markaðsverðs vegna þess að markaðsverð fastafjármuna er talið verulega hærra en bókfært verð þeirra af ástæðum sem taldar eru varanlegar.

Heildarhagnaður var um 1.567 milljónir króna.

Þá er gert ráð fyrir því að í lok árs verði tekjur á bilinu 19.800-20.100 milljónir króna og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu á bilinu 13.200-13.500 milljónir króna.

Matshækkun fjárfestingareigna á fyrri árshelmingi hafi þá numið 3.895 milljónum króna, heildareignir samstæðunnar voru 268.847 milljónir og eigið fé 77.238 milljónir í lok júní 2026. 

Greint er frá því í uppgjörinu að innri vöxtur félagsins í uppbyggingar- og þróunarverkefnum sé 5,4 milljarðar króna á fyrri hluta 2026.

Stærstu verkefnin séu uppbygging á Hyatt hóteli við Laugaveg, umbreyting skrifstofuhúsnæðis við Nauthólsveg í hjúkrunarheimili og nýframkvæmdir á Korputúni.

Góður framgangur sé í öllum verkefnum félagsins og dreifast þau vel eftir tegund húsnæðis og eru þar á meðal hótel, atvinnurými, íbúðir og hjúkrunarheimili. Nýr leigusamningur við Dranga um 5.500 fm verslunarrými á Korputúni markaði lykiláfanga í þróun svæðisins sem er meðal umfangsmestu uppbyggingarverkefna félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×