Lífið

„Hún sagði já“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Þorleifur Örn og Erna Mist eru búin að trúlofa sig.
Þorleifur Örn og Erna Mist eru búin að trúlofa sig.

Leikstjórinn Þorleifur Örn Arnarsson og Erna Mist Yamagata, leikmyndahönnuður og myndlistarkona, eru trúlofuð. Þau eignuðust annað barn sitt í lok júní og hafa verið í Zurich í sumar að sýna óperuna Tannhäuser.

Þorleifur greindi frá trúlofuninni á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. Þar birti hann mynd af höndum parsins með trúlofunarhringa og skrifaði við hana: „Hún sagði já“. Hamingjuóskum hefur rignt inn til parsins síðan.

Parið hefur haft nóg fyrir stafni síðustu mánuði og flakkað milli Kína, Tékklands, Þýskalands og Sviss. Þau hafa verið í Zurich í sumar þar sem þau frumsýndu óperuna Tannhäuser eftir Wagner í óperuhúsinu í Zurich 21. júní og aðeins nokkrum dögum síðar eignuðust þitt sitt annað barn saman, lítinn son, en fyrir áttu þau dótturina Þórhildi Nótt. 

Uppsetningin á Tannhäuser hefur gengið vel og var hún valin sýning ársins af óperutímaritinu Opernfreund auk þess sem leikmynd Ernu var valin leikmynd ársins og hljómsveitarstjórinn Tugan Sokhiev valinn hljómaveitarstjóri ársins.


Tengdar fréttir

Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son

Erna Mist Yamagata myndlistarkona og Þorleifur Örn Arnarsson eignuðust son þann 27. júní síðastliðinn, sex dögum eftir frumsýningu þeirra á óperunni Tannhäuser. Fyrir eiga þau dótturina Þórhildi Nótt sem fæddist í janúar 2025.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.