Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Bjarki Sigurðsson skrifar 23. ágúst 2026 14:22 Páll Pálsson hefur skoðað hvernig fasteignamarkaðurinn þróaðist í löndum fyrir inngöngu í ESB. Vísir/Vilhelm/Aðsend Fasteignaverð hefur rokið upp í löndum við inngöngu í Evrópusambandið. Fasteignasali segir þó ómögulegt að fullyrða hvað myndi gerast gangi Ísland inn í sambandið og taki upp evru.
Páll Pálsson fasteignasali tók saman nokkur dæmi um hvað hefur gerst á fasteignamarkaði ríkja eftir að þau gengu í sambandið. Í höfuðborg Eistlands hækkaði verð um yfir 150 prósent á fjórum árum og á Möltu hækkaði verð um 36,7 prósent á einu ári. Á tólf ára tímabili í kringum upptöku evrunnar hækkaði fasteignaverð á Írlandi um fjögur hundruð prósent, árin þrjú á undan og svo fyrstu níu árin eftir upptöku. „Af þrjátíu milljón króna láni erum við að borga 275 þúsund krónur á mánuði. Tólf þúsund af því fer í höfuðstólinn. Þeir sem eru í Evrópusambandinu borga 135 þúsund á mánuði og fimmtíu þúsund kall fer í höfuðstólinn. Síðan eru þetta viðbrögðin, við sjáum til dæmis í Danmörku að haustið 2022 fór verðbólga upp í tíu prósent. Danir brugðust við með að hækka vexti í heil 3,6 prósent. Þeir sáu að ef þeir myndu hækka vexti það mikið að það færi í verðlag væru þeir í vítahring. Í dag er verðbólga þar um 1,75 prósent og stýrivextir 1,85 prósent,“ segir Páll Pálsson. Lærum af öðrum Það sé þó ómögulegt að spá fyrir um hvað myndi gerast hér á landi skyldum við ganga í sambandið. Páll segir það þó líklegt að vextir myndu á endanum lækka. „Það er einhver heimilishagfræði sem segir að við hverja lækkun um eitt prósent á vöxtum hækki fasteignaverð um tíu prósent. Vissulega er hægt að koma í veg fyrir það með því að passa framboðið eins og var gert á Spáni. Þeir pössuðu að framboðið væri rosalega mikið til að koma í veg fyrir að fasteignaverð, og þar af leiðandi verðbólga á þeim markaði, myndi hækka verulega,“ segir Páll. Skilur báðar hliðar Hann skilji vel að þeir sem eru þreyttir á fasteignamarkaðinum vilji ganga í Evrópusambandið. „Ég held að lausnin sé að endurhugsa lánakerfið á Íslandi. Hvort sem við tengjum krónuna eins og Danir við evru eða tökum upp nýjan gjaldmiðil á Íslandi. Það þarf í það minnsta að finna lausnir, að við séum ekki alltaf með þessa rosalega háu vexti og verðbólgu. Ég skil jáin og ég skil líka fólkið sem er á móti þessu því það er að fórna öðrum verðmætum. Mér finnst bæði já og nei hafa rétt fyrir sér,“ segir Páll.
Neytendur Húsnæðismál Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Fasteignamarkaður Fjármál heimilisins Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira