TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. ágúst 2026 23:19 Samfélagsmiðillinn TikTok er einn sá vinsælasti í heimi en talið er að um á forritinu séu einn og hálfur milljarður mánaðarlegra virkra notenda. Getty Samfélagsmiðillinn TikTok hefur samþykkt að greiða Bandaríkjunum fjögur hundruð milljónir Bandaríkjadala, eða um 49 milljarða íslenskra króna, til að ljúka málsókn en miðillinn var sakaður um að brjóta á friðhelgi barna með upplýsingaöflun. Sáttin er ein sú stærsta sem hefur verið gerð vegna slíks máls.
Árið 2024 höfðaði dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna, í forsetatíð Joes Biden, mál á hendur TikTok og fyrrverandi móðurfyrirtæki þess, ByteDance. Miðillinn var sakaður um að safna gífurlegu magni gagna um notendur forritsins sem voru undir þrettán ára aldri. Samkvæmt alríkislögum Bandaríkjanna, sem sett voru árið 2000, er það brot á lögum sem varða verndun friðhelgi barna á netinu, svokölluð COPPA-lög. Lögin krefjast þess að miðlar og netþjónustur sem markaðssett eru af börnum fái samþykki foreldra notenda sem eru yngri en 13 ára fyrir gagnasöfnun persónuupplýsinga. Forsendur málsins voru þær að 170 milljónir unglinga notuðu TikTok og að forritinu væri beint að börnum. Forritið hafi þó ekki metið aldur notenda á skilvirkan hátt né fengið samþykki foreldra fyrir notkun notenda undir þrettán ára aldri. TikTok er bannað börnum undir þrettán ára. „Börn og foreldrar eru betur varin í dag en þau voru þegar þetta mál hófst,“ er haft eftir aðstoðarríkissaksóknara Bandaríkjanna, Brett Shumate, í umfjöllun BBC. Tuttugu og níu Bandaríki gegn Meta Ýmsum fyrirtækjum hefur verið gert að greiða sektir til bandarískra stjórnvalda fyrir brot á COPPA-lögunum. Youtube, í eigu Google, greiddi til að mynda 170 milljónir dala árið 2019 og Epic Games 275 milljónir árið 2022. Tæknirisinn Meta, sem á meðal annars Facebook og Instagram, á nú yfir höfði sér sektir sem gætu numið hundruðum milljarða dala vegna meintra brota á fyrrnefndum lögum. Tuttugu og níu Bandaríki hafa nú höfðað mál gegn Meta en réttarhöldin hófust í þessari viku. Í því máli er Meta sakað um að safna gögnum um börn, undir 13 ára, án leyfis foreldra þeirra. Réttarhöldin fara fram í Kaliforníu og er búist við að þau taki sex til átta vikur. Ríkin krefjast skaðabóta auk þess að fyrirtækið breyti háttsemi sinni í garð barna, til að mynda hvað varðar algrím (e. algorithm) og sjálfvirka spilun myndbanda. Í forsetatíð Bidens þrýsti hann á TikTok að annaðhvort yrði forritið bannað í eða að fyrirtækið seldi frá sér starfsemi sína í Bandaríkjunum. Donald Trump, núverandi forseti Bandaríkjanna, studdi síðar sölu á miðlinum, sem átti sér stað á síðasta ári. Starfsemi forritsins í Bandaríkjunum er nú í 81 prósent eigu samsteypu fjárfesta, en ByteDance heldur 19 prósenta hlut þess.
TikTok Bandaríkin Kína Samfélagsmiðlar Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira