Körfubolti

ÍR semur við banda­rískan bakvörð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mathis í leik í háskólaboltanum.
Mathis í leik í háskólaboltanum.

ÍR hefur gengið frá samningi við bandaríska bakvörðinn Montez Mathis fyrir komandi tímabil í Bónus-deild karla í körfubolta.

Mathis er 27 ára gamall og 193 sentímetrar á hæð. Hann kemur til Breiðholtsliðsins frá BC Rustavi í Georgíu, þar sem hann lék með liðinu sem hafnaði í öðru sæti deildarinnar á síðasta tímabili. Þetta þýðir að Jacob Falko verður ekki áfram með liðinu á næsta tímabili en aðeins er leyfilegt að vera með einn bandarískan leikmann í hverju liði.

Í Georgíu var Mathis með 18 stig, 6,5 fráköst, 4,3 stoðsendingar og 2,3 stolna bolta að meðaltali í leik.

Mathis lék áður í NCAA Division I með Rutgers og St. John's. Hann lék 90 leiki fyrir Rutgers og varð þar hluti af liði sem komst í March Madness í fyrsta sinn í þrjá áratugi. Á síðasta háskólaári sínu með St. John's skoraði hann 9,6 stig að meðaltali og fór yfir þúsund stiga múrinn á háskólaferlinum.

Eftir háskólaferilinn fékk Mathis tækifæri til að spila í NBA Summer League með Orlando Magic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×