Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 23. ágúst 2026 22:52 Kirkjan er kennileiti bæjarins. vísir/vilhelm Ráðast þarf í mikið viðhald á Akureyrarkirkju og er áætlað að viðhaldskostnaður nemi fimm hundruð milljónum. Stefnt er að því að kirkjan verið komin í gott stand árið 2040 þegar hundrað ár verða frá vígslu hennar.
Undanfarin ár hefur sóknarnefnd Akureyrarkirkju þurft að mæta ófyrirséðum útgjöldum þegar kemur að viðhaldi kirkjunnar. „Fyrst var bolta sparkað í gegnum rúðuna í einn af strengdu gluggunum. Svo var kveikt í útidyrahurðinni og þriðja áfallið þegar kirkjan var spreyjuð að utan. Svo fór þakið að leka á safnaðarheimilinu þannig þetta hefur ekki verið neitt fyrirbyggjandi viðhald,“ sagði Hjörtur Narfason, formaður sóknarnefndar kirkjunnar. Árið 2040 verða liðin hundrað ár frá því að kirkjan var vígð og er stefnt að því að þá verði kirkjan komin í gott stand þannig að hún geti staðið næstu hundrað árin. „Til þess að það geti gerst þarf að skipta um gólfið í kirkjuskipinu, koma loftræstingu þangað inn, laga orgelið, setja nýtt eldhús í safnaðarheimilið og klára það að utan eftir vatnstjón þannig það er af nógu að taka.“ Vinir Akureyrarkirkju Kostnaðaráætlun hefur verið sett fram og hljóðar upp á 500 milljónir. Unnið er að því að safna fjármagni fyrir framkvæmdunum og hefur styrktarfélagið Vinir Akureyrarkirkju verið stofnað. „Svona styrktarfélag þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta lagt kirkjunni lið, óbundið einhverju trúarstarfi. Þetta snýst eingöngu um viðhald á þessu vörumerki Akureyrar sem heitir Akureyrarkirkja.“ Allt fé fer eingöngu í framkvæmdir Hjörtur hvetur einstaklinga og fyrirtæki til að leggja verkefninu lið. Það er hægt að fara inn á síðuna eða á Faceook síðu vina Akureyrarkirkju. Þar eru leiðbeiningar, annað hvort að gerast árlegur vinur sem eru 10 þúsund á ári eða að leggja eitthvað styrktarfé inn á reikninginn hjá okkur til að styðja við bakið á framkvæmdum. Allt fé sem safnast þarna inn fer eingöngu bara í framkvæmdir við sjálfa bygginguna.“
Akureyri Húsavernd Þjóðkirkjan Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira