Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Freyja Þórisdóttir skrifar 19. ágúst 2026 20:34 Enn liggur ekki fyrir hvað orsakaði slysið en ekki er grunur um hraðaakstur. SÝN Vinna við að færa flutningabíl sem valt í aðrein frá Reykjanesbraut við Ártúnsbrekku á níunda tímanum í morgun af vettvangi tók rúmar sjö klukkustundir. Umferð var stýrt um svæðið á meðan og gekk það vel þrátt fyrir að einhverjar teppur hafi myndast.
Ólafur Sævar Gunnarsson lögregla í umferðadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ræddi við fréttamann Sýnar en hann sagði ekki enn liggja fyrir hvað orsakaði slysið en ekki sé grunur um hraðaakstur. „Það er ekki grunur um hraðakstur eða neitt slíkt, mögulega hefur þetta eitthvað með lestun á farmi að gera en þetta verður skoðað nánar og ekki hægt að segja meira um það á þessu stigi,“ segir hann. Betur fór en á horfðist en ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar eftir að hafa slasast lítillega. „Þetta hefur aðeins haft áhrif á umferð hérna þar sem kemur að Miklubraut til austurs en engin teljandi áhrif en það er búið að vera hérna umferðarstjórn að einhverju leyti,“ segir Ólafur Gunnar Sævarsson umferðarlögreglumaður. Lögreglan, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og fleiri komu að vinnunni við að fjarlægja flutningabílinn af vettvangi en vinnan tók fleiri klukkustundir. „Þetta er búið að vera langt verkefni frá því rúmlega níu í morgun,“ segir Ólafur. „Þetta er náttúrulega vörubifreið með eftirvagn sem fer á hliðina og það þarf náttúrulega að kalla til þrjá stóra kranabíla til þess að rétta þetta við og koma þessu upp á pall. Þetta tekur alltaf langan tíma, svona verkefni.“ Einnig þurfti að kalla til dælubíl svo að unnt væri að dæla olíu úr tönkum flutningabílsins sem valt. Olíulekinn hafi lengt þann tíma sem tók að fjarlægja bílinn af vettvangi en bíllinn hafi verið að flytja steinull og timbur þegar hann valt. „Það gekk bara mjög vel en það fór talsvert af dísilolíu hérna á götuna og slökkvilið, hreinsitækni og fleiri aðilar hreinsuðu þetta af götunni og það tók nokkra klukkutíma.“
Umferð Reykjavík Lögreglumál Slökkvilið Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira