„Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Agnar Már Másson skrifar 20. ágúst 2026 15:56 Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, er gestur í Vísi að viðræðum. Verkalýðsforystan innan ASÍ er klofin í afstöðu sinni til aðildarviðræðna. Ólíkt starfssystkinum sínum í Eflingu og Starfsgreinasambandinu hyggst Sonja kjósa „já“ hinn 29. ágúst. Vísir/Sara Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið, að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur formanns BSRB, enda löggjöfin að miklu leyti innleidd í gegnum EES. Sonja á erfitt með að skilja hvers vegna fólk haldi að staða og réttindi verkafólks myndu versna til muna með inngöngu, en vill samt ekki fullyrða hvort hún muni batna.
Sonja ræðir við Agnar Má Másson fréttamann um þessi mál og fleiri í nýjasta þætti Vísis af viðræðum, sem er ný þáttaröð Vísis er fjallar um atkvæðagreiðsluna 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Verkalýðsforystan er klofin í afstöðu sinni til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok ágústs. Svo klofin er hún að Alþýðusambandið (ASÍ), sem telur á annað hundrað félagsmanna, hyggst ekki taka opinbera afstöðu í málinu – sem er gjörólíkt því sem gerðist í kringum aðildarviðræðurnar 2009-2013, þegar sambandið lýsti yfir stuðningi við aðild að Evrópusambandinu (ESB). Í dag er andstaðan talsvert meiri; Sólveig Anna Jónsdóttir hjá Eflingu og Vilhjálmur Birgisson hjá Starfsgreinasambandinu hafa lýst því yfir að þau telji hagsmunum verkafólks betur borgið utan ESB. Sú fyrrnefnda hefur sömuleiðis komið að stofnun „Til vinstri við ESB“. Sonja Ýr er formður BSRB, sem er Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, en hún segir að bandalagið sjálft ætli ekki að taka opinbera afstöðu í atkvæðagreiðsluni. Hún sjálf ætli engu að síður að segja já. „En vegna þess að það hafa verið svo mikil læti um það að verkalýðshreyfingin öll ætli að segja nei núna í ágúst, þá held ég að það sé allt í lagi að ég segi frá því að ég segi já í ágúst.“ Hún kveðst þó enginn Evrópusinni. Íslenska vinnulöggjöfin að miklu leyti komin frá Evrópu „En ég held að eins og í þessu, ef við tökum íslenska vinnumarkaðslöggjöfina, þá er hún nánast komin til frá Evrópu að miklu leyti,“ segir Sonja og nefnir löggjöf um vinnuvernd og reglur um hópuppsagnir og jafnrétti. „Hvað varðar réttindi og skyldur launafólks þá breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB.“ Aftur á móti kveður ESB-löggjöfin ekki á um kjarasamninga eða vinnudeilur, né almannatryggingar eða velferðamál. Þá segir hún að það rangt að breytingar verði á íslenska kjarasamningskerfinu ef Ísland gangi inn í Evrópusambandið, en sumir verkalýðsforklólfar hfaa lýst áhyggjum af slíkum breytingum. „Þeir segja ekkert til um það hvernig kjarasamningsmódelið eigi að vera. Það eru engar reglur um það,“ segir Sonja, sem kveðst þó skilja þær áhyggjur sem kollegar sínir í verkalýðsforystunni hafa af til dæmis sjávarútvegnum.
Hlaðvarp Vísis Vísir að viðræðum Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Sjá meira