„Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Dale Carnegie 20. ágúst 2026 09:45 Eyrún Linnet, rafmagnsverkfræðingur og frumkvöðull, fór fyrst á Dale Carnegie námskeið til að verða betri leiðtogi. Það kom henni á óvart hvaða þjálfun skilaði henni mestum árangri. „Ég vil meina að bestu stjórnendurnir séu mannlegir. Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra,“ segir Eyrún Linnet, rafmagnsverkfræðingur og frumkvöðull en hún hefur gegnt fjölbreyttum og ábyrgðarmiklum störfum á sínum ferli.
Eyrún hóf starfsferil sinn hjá Landsneti en fór síðar til Rio Tinto á Íslandi, þar sem hún varð fyrsta konan til að gegna starfi rafveitustjóra. Síðar stofnaði hún tæknifyrirtækið SnerpuPower ásamt vinkonu sinni. Eyrún hætti hjá SnerpuPower á síðasta ári og hóf störf hjá Johan Rönning í sumar sem viðskiptastjóri á stórnotendasviði. „Það má segja að ég sé komin hinum megin við borðið, að þjónusta og selja fyrrum vinnuveitendum mínum rafbúnað,“ segir Eyrún. Hún ákvað snemma að nýta tiltæk verkfæri til að styrka sig í starfi og sem stjórnanda en vinnumarkaðurinn tekur örum breytingum samhliða aukinni sjálfvirknivæðingu og nú með innleiðingu gervigreindar. Störf þróast, verkefni breytast og sú færni sem dugði starfsfólki í gær dugar ekki endilega á morgun. Fólk þarf einnig að geta tekist á við breytingar, tekið við endurgjöf, átt góð samskipti og fengið aðra með sér. Þar liggur styrkur Dale Carnegie námskeiðsins, sem þjálfar meðal annars sjálfstraust, tjáningu, tengslamyndun, sannfæringarkraft, sveigjanleika og seiglu. Eyrún fór fyrst á Dale Carnegie námskeið til að verða betri leiðtogi. Það kom henni á óvart að streitustjórnunin reyndist sá hluti námskeiðsins sem hafði mest áhrif á líf hennar. Hún hefur nú farið fjórum sinnum í gegnum námskeiðið, þar af þrisvar sem aðstoðarmaður kennara, og segir lærdóminn nýtast sér jafnt í starfi sem einkalífi. Streitan hafði áhrif á færni Þegar Eyrún skráði sig fyrst á námskeiðið fyrir átta árum var hún rafveitustjóri hjá Rio Tinto á Íslandi. Ábyrgðin var töluverð, mikið gekk á í vinnunni og sá Eyrún námskeiðið fyrst og fremst sem tækifæri til þess að skerpa stjórnunarfærni sína. „Ég vildi bæta mig sem leiðtogi og læra að höndla starfið betur. Á þeim tíma hafði ég ekki almennilega áttað mig á því hversu mikil streitan var orðin. Ég svaf illa og álagið var farið að segja til sín. Ég vissi ekkert að það yrði talað um streitu á þessu námskeiði, ég var þarna til að bæta mig sem leiðtoga,“ segir Eyrún og hlær. Þegar upp var staðið var það þó streitustjórnunin sem hún taldi sig hafa grætt mest á. „Hún breytti lífi mínu. Ég lærði að forgangsraða verkefnum og spyrja mig: Hvað er það versta sem getur gerst? Þegar ég náði tökum á streitunni og fór aftur að sofa á nóttunni varð allt annað auðveldara. Það bætti mig sem starfsmann og þar með sem leiðtoga.“ Að sjá manneskjuna á bak við hegðunina Mannleg samskipti eru annar þáttur námskeiðsins sem hefur fylgt Eyrúnu en fyrir stjórnendur nýtist námskeiðið sérstaklega við að leiða og hvetja fólk, gefa endurgjöf, skapa liðsheild og fá fólk með sér. Hún segir eitt það gagnlegasta hafa verið að læra að sýna fólki einlægan áhuga og reyna að skilja manneskjuna á bak við hegðunina. „Þegar maður sýnir fólki áhuga og kynnist því betur sér maður hvað liggur að baki og á auðveldara með að taka fólki eins og það er. Þetta á bæði við í vinnunni og einkalífinu. Við erum öll mismunandi en í grunninn erum við lík. Okkur finnst gott þegar einhver sér okkur, hlustar á okkur og sýnir því áhuga sem við höfum að segja.“ Á námskeiðinu er meðal annars unnið með virka hlustun, samvinnu og leiðir til að hafa áhrif án þess að ganga yfir annað fólk. Þátttakendur æfa sig í að leyfa öðrum að tala, eigna sér ekki hugmyndir annarra og vera ósammála á viðkunnanlegan hátt, taka eftir styrkleikum annarra og hrósa af einlægni. Eyrún segir það hafa áhrif á það hvernig fólk horfir bæði á samstarfsfólk sitt og sína nánustu. „Þegar maður venur sig á að hrósa sér maður frekar það góða í fólki. Það sem fór áður mögulega í taugarnar á manni í fari viðkomandi hverfur. Mikið af því sem farið er yfir á námskeiðinu virðist vera almenn skynsemi en almenn skynsemi er ekki alltaf svo almenn. Það þarf að minna sig á að hlusta, gefa öðrum rými og sýna þeim virðingu. Þannig nær maður frekar að leiða fólk og fá það til að fylgja sér.“ Eyrún segir líka mikilvægt að þora að stíga út fyrir kassann, finna barnið í sér aftur og leyfa sér að hafa gaman. „Það má alveg fíflast líka.“ Hæfni til að aðlagast og læra nýja hluti Dale Carnegie hóf að kenna námskeið sitt árið 1912 en það hefur þróast í takt við samfélagið og breyttar þarfir atvinnulífsins. Kjarninn er þó enn sá sami: að styrkja fólk í samskiptum, tjáningu og leiðtogahlutverki og hjálpa því að byggja upp sjálfstraust og seiglu. Þörfin fyrir þessa færni endurspeglast skýrt í Future of Jobs Report 2025 frá World Economic Forum. Þar kemur fram að atvinnurekendur gera ráð fyrir að um 39% af lykilfærni starfsfólks muni breytast fyrir árið 2030 og að 59 af hverjum 100 starfsmönnum muni þurfa einhvers konar þjálfun eða færniuppbyggingu fyrir þann tíma. Er Dale námskeiðið ,,feel good” námskeið eða grjóthart business námskeið? Svarið er að það fer eftir þínum áherslum. Upplifði aftur að hún væri góð í einhverju Eyrún gekk í gegnum erfiðan tíma eftir að hún slasaðist illa fyrir tveimur árum. Batinn tók langan tíma og hún var frá vinnu. Undir lok veikindaleyfisins hafði hún sjálf samband við Dale Carnegie og bauðst til að verða aðstoðarmaður á námskeiði. „Ég vissi að ég vildi fara aftur í gegnum ferlið á námskeiðinu áður en ég færi út á vinnumarkaðinn. Ég hugsaði með mér að þetta yrði góð upprifjun og það reyndist mjög gott að gera þetta undir lok veikindaleyfisins. Eftir átta mánuði frá vinnu fékk ég aftur að upplifa að ég væri góð í einhverju,“ segir hún. Það sé einnig gefandi að fylgjast með þeirri breytingu sem geti orðið á þátttakendum. Í hópunum sé fólk með mjög ólíkan bakgrunn, allt frá stjórnendum stórfyrirtækja og sérfræðingum til fólks sem sé að byggja sig upp að nýju eftir veikindi eða áföll. Stjórnendur geta styrkt hæfni sína til að leiða, hvetja og gefa endurgjöf, en aðrir þátttakendur öðlast aukið sjálfstraust til að sýna frumkvæði og koma hugmyndum á framfæri. Námskeiðið getur því bæði aukið árangur í núverandi starfi og undirbúið þátttakendur fyrir ný tækifæri. „Það myndast oft ótrúlega fljótt mikið traust innan hópsins. Ég hef alltaf átt auðvelt með að tala fyrir framan fólk en það eiga ekki allir auðvelt með það. Það er mjög gaman að sjá fólk uppgötva styrkleika sem það vissi ekki að það hefði.“ „Mér finnst Dale Carnegie námskeiðið vera fyrir alla, sérstaklega fólk sem vinnur undir álagi og í samskiptum við aðra. Flest störf snúast með einhverjum hætti um fólk. Ef þú vilt eiga góð samskipti við samstarfsfélaga, halda utan um verkefnin þín og fá aðra með þér þá getur þetta nýst þér. Streitustjórnunin, samskiptin og hæfnin til að fá fólk með sér hafa nýst mér mest. Maður er alltaf að reyna að bæta sig, bæði í vinnunni og einkalífinu. Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra.“
Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira