Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Magnús Jochum Pálsson skrifar 18. ágúst 2026 15:59 Sigga Beinteins, Atli Geir og Örn Árnason tróna á toppi listans yfir tekjuhæstu listamennina. Atli Geir Grétarsson leikmyndahönnuður er langefstur á lista yfir tekjuhæstu listamenn landsins. Næst á eftir honum koma söngkonan Sigga Beinteinsdóttir og leikarinn Örn Árnason. Ofarlega á blaði eru einnig leikarinn Ólafur Darri, leikstjórinn Baltasar Kormákur, Jökull í Kaleo og skemmtikrafturinn Steindi jr. Þetta kemur fram um tekjuhæstu listamennina í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Um er að ræða útsvarsskyldar tekjur árið 2025 og hafa ber í huga að þær tekjur endurspegla þó ekki endilega öll laun viðkomandi. Fjölbreyttan hóp er að finna í hópi listamanna, fólk úr kvikmyndageiranum, leiklistarfólk, tónlistarmenn, myndlistarmenn, uppistandara, rithöfunda og sömuleiðis framkvæmdastjóra og stjórnendur menningarstofnana. Leikmyndahönnuðurinn Atli Geir Grétarsson hefur verið ofarlega á listanum síðustu ár en er langhæstur árið 2025 með rúmar 3,5 milljónir króna á mánuði. Næst á eftir honum kemur Sigga Beinteinsdóttir með 2,120 milljónir og þriðja sætið vermir leikarinn Örn Árnason með 2,022 milljónir. Tíu tekjuhæstu úr listageiranum Atli Geir Grétarsson með 3,536 milljónir Sigríður M. Beinteinsdóttir með 2,120 milljónir Örn Árnason með 2,022 milljónir Kristín Á. Ögmundsdóttir með 2,001 milljónir Steinþór Hróar Steinþórsson með 1,989 milljón Ólafur Darri Ólafsson með 1,933 milljón Stefán Sigurður Stefánsson með 1,624 milljón Guðni Tómasson með 1,565 milljón Baltasar Kormákur Baltasarsson með 1,544 milljón Lilja Ó. Snorradóttir með 1,543 milljón Grínistar og leikarar atkvæðamiklir Skemmtikraftar eru margir tekjuháir. Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi jr., er með 1,989 milljónir króna á mánuði, uppistandarinn Ara Eldjárn er með 1,320 milljónir, grínarinn Vilhelm Neto er með 1,237 milljón, Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, er með 1,051 milljón, Sólmundur Hólm Sólmundarson, Sóli Hólm, er með rétt rúma milljón og uppistandarinn Bergur Ebbi Benediktsson er með 981 þúsund krónur. Steindi, Ari og Villi eru tekjuhæstu grínistarnir. Leikarar eru margir hverjir tekjuháir. Eins og áður sagði eru leikararnir Örn Árnason og Ólafur Darri Ólafsson meðal þeirra tekjuhæstu með í kringum tvær milljónir á mánuði. Reynsluboltarnir og Spaugstofumeðlimirnir Sigurður Sigurjónsson og Pálmi Gestsson eru aðeins tekjulægri, Siggi með 1,489 milljón á mánuði og Pálmi með 1,428 milljón. Af leikurum neðar á listanum má nefna Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur með 1,160 milljón, Hilmi Snæ Guðnason með 1,142 milljón, Björn Thors með 1,027 milljón, Nínu Dögg Filippusdóttur með 1,017 milljón og Atli Rafn Sigurðsson með 985 þúsund krónur. Örn, Siggi og Pálmi eru allir ofarlega á listanum en Karl Ágúst nokkuð neðar með 499 þúsund krónur á mánuði. Tónlistarmenn, rithöfundar og myndlistarmenn Fyrrnefnd Sigga Beinteins trónir á toppnum yfir tónlistarmenn og næstur á eftir henni er tónskáldið Stefán Sigurður Stefánsson með 1,624 milljón króna. Rokkararnir í Kaleo raða sér ofarlega á listann, söngvarin Jökull Júlíusson er með 1,542 milljón, gítarleikarinn Rubin Pollock er með 1,473 milljón og Davíð Antonsson er með 1,364 milljón króna. Kaleo héldu sína fyrstu tónleika á Íslandi síðan 2015.Vísir/Viktor Freyr Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, er með 1,263 milljón króna. Rétt fyrir neðan hana eru söngkonan Una Torfadóttir með 1,228 milljón og rapparinn Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra hnetusmjör, með 1,211. Félag Árna, Kópbois ehf., hefur þó hagnast mikið á síðustu árum. Herra Hnetusmjör rekur fyrirtækið Kópboi ehf. sem hagnaðist um tugi milljóna í fyrra.Vísir/Daníel Thor Önnur nöfn sem vert er að nefna eru Erpur Eyvindarson með 1,125 milljón króna, Ótarr Proppé með 1,099 milljón, Snæbjörn Ragnarsson í Skálmöld með 1,093 milljón, Barði Jóhannsson með 1,091, Björn Jörundur Ragnarsson með 1,064 milljón, Sigrún Hjálmtýsdóttir, betur þekkt sem Diddú, með 1,023 milljón, Bubbi Morthens með 1,006 milljón, Aron Can með 964 þúsund, Emmsjé Gauti með 771 þúsund og Patrik Snær Atlason með 658 þúsund. Erpur, Óttarr, Björn Jörundur, Diddú, Bubbi og Aron Can. Efstu rithöfundarnir á listanum eru Halldór Guðmundsson með 1,204 milljón á mánuði, Arnaldur Indriðason með rétt rúma milljón, Hallgrímur Helgason með 969 þúsund, Auður Jónsdóttir Laxness með 901 þúsund og Jón Kalman Stefánsson með 855 þúsund krónur. Myndlistarmenn eru margir að gera það gott. Eggert Pétursson er með 1,299 milljón króna á mánuði, Ragnar Kjartansson, betur þekktur sem Rassi prump, með 1,102 milljón, Helgi Þorgils Friðjónsson með 826 þúsund og Rán Flygenring með 791 þúsund. Eggert, Hallgrímur, Arnaldur og Ragnar þurfa ekki að hafa áhyggjur. Forkólfar menningarstofnana og kvikmyndagerðarfólk Framkvæmdastjórar og stjórnendur menningarstofnana eru margir ofarlega á blaði. Þar tróna efst Kristín Á. Ögmundsdóttir, framkvæmdastjóri Borgarleikhússins, er með rétt rúmar tvær milljónir og Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, með 1,565 milljón. Guðni og Kristín eru ekki á flæðiskeri stödd. Brynhildur Guðjónsdóttir, sem hætti sem Borgarleikhússtjóri í fyrra, er með 1,462 milljón á mánuði, Skúli F. Malmquist, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins, er með 1,360 milljón og Egill Heiðar Anton Pálsson, núverandi Borgarleikhússtjóri, er með 1,090 milljón króna. Núverandi og fyrrverandi Borgarleikhússtjórar, Egill og Brynhildur. Úr kvikmyndageiranum er leikstjórinn Baltasar Kormákur Baltasarsson með 1,544 milljón króna á mánuði, Lilja Ósk Snorradóttir, framleiðandi og eigandi Pegasus, er með 1,543 milljónir og leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson er með 1,227 milljón. Balti, Lilja Ósk og Hannes Þór eru að gera það gott. Ógrynni listamanna er að finna á lista tekjublaðsins og ómögulegt að tína þá alla til hér. Meðal þeirra tekjulægstu eru hins vegar söngkona Svala Björgvinsdóttir með 217 þúsund krónur á mánuði, rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl með 166 þúsund, leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson með 165 þúsund, Ingó veðurguð með 126 þúsund og Gísli Pálmi Sigurðsson með 107 þúsund krónur. Neðstur á listanum er Auðunn Lúthersson með núll krónur en hann hefur verið búsettur í Los Angeles síðustu ár. Tíu tekjulægstu listamennirnir Svala Björgvinsdóttir með 217 þúsund Gabríela Kristín Friðriksdóttir með 211 þúsund Eiríkur Örn Norðdahl með 166 þúsund Þorvaldur Davíð Kristjánsson með 165 þúsund Nanna Kristín Magnúsdóttir með 162 þúsund Arnar Gauti Sverrisson með 158 þúsund Ingólfur Þórarinsson með 126 þúsund Gísli Pálmi Sigurðsson með 107 þúsund Kristín Ásta Kristinsdóttir með 56 þúsund Auðunn Lúthersson með núll krónur Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Myndlist Leikhús Tónlist Bíó og sjónvarp Uppistand Kvikmyndagerð á Íslandi Tekjur Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Myndlist Leikhús Tónlist Bíó og sjónvarp Uppistand Kvikmyndagerð á Íslandi Tekjur Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira