Bandarískur sjóður byggt upp um fimm prósenta stöðu í kjölfar útboðs Alvotech
Bandarískur sjóður, sem hefur einkum lagt áherslu á fjárfestingar í heilbrigðistengdum fyrirtækjum, hefur byggt upp stóra stöðu í Alvotech í kjölfar útboðs líftæknilyfjafélagsins og er núna þriðji stærsti hluthafinn með nærri fimm prósenta hlut. Tveir þekktustu vogunarsjóðsrisar í heimi voru jafnframt meðal fjárfesta sem keyptu drjúgan hluta þeirra bréfa sem Alvotech seldi í hlutafjáraukningu félagsins í byrjun sumars.
Tengdar fréttir
Þátttakan í útboði Alvotech fjármögnuð með láni frá breskum vogunarsjóði
Þátttaka Celtic Lux Holdings, annar stærsti hluthafi Alvotech og meðal annars í eigu stjórnarformannsins Róberts Wessman, í nýafstöðnu hlutafjárútboði var fjármögnuð með fjörutíu milljóna dala láni frá breskum sjóði þar sem allur eignarhluturinn í líftæknilyfjafélaginu var settur að veði.
Hækka verðmatið og segja Simponi geta orðið „vendipunktur“ fyrir Alvotech
Alvotech gæti séð fram á „verulegan ávinning“ eftir að samkeppnisstaðan á markaði fyrir hliðstæðulyf við Simponi hefur breyst félaginu í hag, samkvæmt SEB, sem hefur hækkað verðmat sitt um nærri þriðjung. Greinendur sænska bankans búast við að sölutekjur verði dræmar á öðrum fjórðungi en veðja á að markaðurinn muni endurmeta hlutabréfaverð Alvotech til hækkunar á næstu tólf til átján mánuðum.
Alvotech klárar hlutafjárútboð sem tryggir félaginu allt að tuttugu milljarða
Alvotech hefur klárað almennt sölutryggt hlutafjárútboð í Bandaríkjunum samhliða lokuðu útboði beint að tilteknum fjárfestum á EES-svæðinu sem tryggir félaginu allt að rúmlega tuttugu milljarða, nokkuð meira en stefnt var að. Áskriftargengið var á talsverðum afslætti miðað við dagslokagengið í gær.