Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. ágúst 2026 20:00 Varðsvæði lögreglustöðvar eitt nær meðal annars yfir Laugardal, Hlíðarnar og Vesturbæ. Vísir/Vilhelm Lögreglan sem sér um varðsvæði eitt á höfuðborgarsvæðinu fékk tæplega áttatíu tilkynningar um innbrot í júlí. Ekki hafa fleiri innbrot verið tilkynnt til lögreglunnar fyrri hluta sumars síðan árið 2021.
Í júlí var fjallað um innbrotahrinu á höfðuborgarsvæðinu sér í lagi í miðbæ Reykjavíkur. Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn sagðist um miðjan júlímánuð hafa fengið 45 tilkynningar um innbrot á varðsvæði lögreglunnar eitt. Áfram héldu að berast tilkynningar um innbrot út mánuðinn og efndi Reykjavíkurborg til samráðsfundar um öryggi í borginni. Þar var íbúum ráðlagt að láta húsin sín líta út fyrir að vera í notkun þegar þeir fara í burtu. Fangaklefar voru þá svo yfirfullir að þeir reyndust lögreglunni til trafala þar sem ekki væri hægt að vista grunaða. Fréttastofa óskaði eftir tölulegum upplýsingum um tilkynnt innbrot frá maí til júní árin 2021 til 2026 á varðsvæði lögreglustöðvar eitt. Varðsvæðið nær yfir Vesturbæ, Miðborg, Hlíðarnar, Laugardal, Háaleiti og Seltjarnarnes. Vert er að taka fram að varðsvæðið nær yfir mörg hverfi og gæti vel verið að innbrotum hafi fjölgað í miðbænum en þá sömuleiðis fækkað í öðrum hverfum. Tugir tilkynntra innbrota Í svari lögreglunnar við fyrirspurn fréttastofu segir að alls hafi 77 innbrot verið tilkynnt á svæðinu í júlí 2026 samanborið við júlí 2025 þegar 44 tilkynningar bárust. Af tilkynntum innbrotum 2026 voru 22 í heimahúsi og tólf í ökutæki. Það er á pari við síðasta ár þar sem 21 innbrot var tilkynnt í heimahúsi og fjórtán í ökutæki. Öll tilkynnt innbrotá varðsvæði lögreglustöðvar 1 frá maí-júlí 2021-2026.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Yfir þessa þrjá mánuði síðustu fimm ár voru flest innbrotin árið 2021 eða alls 228. Árið 2022 voru tilkynnt innbrot 132, 2023 voru þau 125 og 181 árið 2024. Síðustu tvö ár hafa voru þau 119 2025 og 185 núna síðustu þrjá mánuði. Þegar rýnt er í tölurnar, sem ná þó einungis fyrir þrjá mánuði, virðist innbrotum á heimili fólks eða einkalóð ekki hafa fjölgað til muna. Af þessu voru flest tilkynnt innbrot í júní árið 2021 en þá voru þau 44 og síðan fjörutíu tilkynningar mánuði seinna. Fjölgi á ný í ágúst Ekki liggja fyrir tölur fyrir ágústmánuð. Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í byrjun ágúst að hægst hefði á innbrotunum þegar einn var tekinn úr umferð í júlí en svo virðist umgangurinn vera hafinn á ný. Það viðtal var tekið eftir að íbúar í og við miðborg Reykjavíkur urðu varir við ítrekuð innbrot í bíla í hverfinu. Einn þeirra fann síma annars íbúa í bílnum sínum, sem átti að vera lestur.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira