Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. ágúst 2026 07:20 Lögreglan á Íslandi er með rafbyssur, kallað taser á ensku. Getty Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um mann vopnaðan rafbyssu í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Viðkomandi fannst ekki.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls gistu fjórir í fangaklefa í nótt. Töluvert var um hávaða og óspektir, sér í lagi á varðsvæði lögreglustöðvar eitt sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes. Þar voru ökumenn í spyrnu og óku á 190 kílómetrum á klukkustund. Lögreglan fór á vettvang og ræddi við ökumenn en ekki kemur fram hvort þeir hafi hlotið sekt eða misst ökuréttindin. Þá var tilkynnt um menn sem voru að reyna að brjóta upp hurð í heimahúsi. Þeir reyndust vera að leita að farsíma. Enn aðrir voru tilkynntir vegna þess að þeir voru að berja í bifreiðar og ónáða fólk. Þar var einn handtekinn fyrir ölvun og óspektir á almannafæri og látinn gista í fangaklefa þar sem hann var ekki talinn hæfur til að vera úti á meðal almennings vegna ástands síns. Lögreglan á varðsvæði fjögur, Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ, þurfti að banka upp á í einu húsi vegna tilkynningar um mikinn hávaða. Þar reyndist vera ungmenni að spila tölvuleiki og var hann beðinn um að lækka í sér. Þá barst tilkynning um aðila sem reyndi að komast inn á heimili. Hann reyndist vera ölvaður og fór húsavillt en lögreglan vísaði honum til síns heima.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira