Sport

Dag­skráin: Bestu mörkin og Andri Lucas með Blackburn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen var öflugur á síðasta tímabili áður en hann meiddist.
Andri Lucas Guðjohnsen var öflugur á síðasta tímabili áður en hann meiddist. Getty/Alex Dodd

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í kvöld eins og vanalega á föstudögum.

Lokaleikur fimmtándu umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta, á milli Víkings og Þór/KA, verður í beinni og strax á eftir munu Bestu mörkin gera upp alla umferðina.

Bestu mörkin gera meira en það því fram undan er stórleikur FH og Breiðabliks á morgun en þar mætast tvö efstu lið deildarinnar í einum af úrslitaleikjum mótsins.

Enska B-deildin fer af stað í kvöld og Andri Lucas Guðjohnsen og félagar í Blackburn Rovers heimsækja Úlfana. Þá verða Gísli Gottskálk Þórðarson og félagar í St. Pauli einnig í beinni.

Það er einnig hægt að sjá beina útsendingu frá öðrum degi á danska meistaramótinu í golfi, Danish Golf Championship, sem og beina útsendingu frá The Standard Portland Classic-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá leik Víkings og Þór/KA í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Klukkan 20.05 hefjast Bestu mörkin þar sem farið verður yfir fimmtándu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

SÝN Sport 4

Klukkan 11.00 hefst bein útsending frá danska meistaramótinu í golfi, Danish Golf Championship, á DP World Tour.

Klukkan 18.00 hefst bein útsending frá The Standard Portland Classic-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 16.20 hefst bein útsending frá leik Holstein Kiel og St. Pauli í þýsku B-deildinni í fótbolta.

Klukkan 18.55 hefst bein útsending frá leik Wolves og Blackburn í ensku B-deildinni í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×