Lakers selt fyrir metupphæð Aron Guðmundsson skrifar 12. ágúst 2026 15:00 Lebron James var á mála hjá Lakers á síðasta tímabili en mun ekki upplifa tíma hjá félaginu undir stjórn Kushner og Iger. Hann er búinn að semja við Philadelphia 76ers. Getty/Joshua Gateley Bandarísku viðskiptajöfrarnir Josh Kushner og Bob Iger eru við það að festa kaup á NBA liðinu Los Angeles Lakers. Sá fyrrnefndi er bróðir tengdasonar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta og hefur verið í fréttum undanfarið tengt misheppnaðri áætlun Gianni Infantino, forseta FIFA um einkafjárfestingu í innviðum sambandsins.
Áætlað kaupverð Kushner og Iger á Los Angeles Lakers er talið vera rúmir tólf milljarðar Bandaríkjadala, sem er metupphæð er varðar kaupverð á íþróttaliði á heimsvísu. Það gerir rúma 1.4 billjón íslenskra króna. Kushner fer fyrir Thrive Capital fjárfestingafélaginu sem átti að halda utan um tuttugu prósenta hlut í FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandinu, í áætlun forsetans Gianni Infantino sem féll ekki vel í kramið hjá knattspyrnuhreyfingunni. Infantino neyddist að lokum til að draga þessa áætlun sína til baka. Update: The agreement is for $12.5 billion. https://t.co/IMvaW0Iolr— Ramona Shelburne (@ramonashelburne) August 12, 2026 Bob Iger er fyrrverandi framkvæmdastjóri Disney en hann er einn af aðaleigendum Angel City FC knattspyrnuliðsins í NWSL deildinni í Bandaríkjunum en íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir er leikmaður liðsins. Kaup Kushner og Iger á Lakers vekur athygli fyrir margra hluta sakir en aðeins er um ár síðan að Mark Walter, núverandi eigandi liðsins, keypti ráðandi hlut í þessu sögufræga félagi fyrir um tíu milljarða bandaríkjadala. Kushner og Iger höfðu áður reynt að koma á laggirnar NBA liði í Las Vegas en reyndist það erfitt. Nú virðast þeir vera að hreiðra um sig í næsta nágrenni í Los Angeles. „Sem miklir aðdáendur NBA deildarinnar erum við mjög stoltir af því að fá tækifæri til þess að verða varðmenn Los Angeles Lakers, félags sem er eitt það sögufrægasta á heimsvísu,“ segir í yfirlýsingu frá Kushner og Iger. Lakers hefur sautján sinnum orðið NBA meistari og einu sinni varð liðið meistari í NBL deildinni sem var forveri NBA deildarinnar. Einn íslenskur leikmaður hefur verið á mála hjá liðinu. Pétur Guðmundsson sem varð á sínum tíma fyrsti íslenski körfuknattleiksmaðurinn til að spila í NBA deildinni. Fjörutíu ár eru liðin frá því að hann gekk í raðir félagsins árið 1986 og var á mála hjá því til ársins 1987. Stjórn NBA deildarinnar mun nú þurfa að yfirfara kauptilboð Kushner og Iger í Lakers og veita samþykki fyrir sölunni áður en hún gengur alveg í gegn. Það ferli gæti tekið nokkrar vikur.
NBA Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Sjá meira