„Það er engin skömm í krabbameininu“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 11. ágúst 2026 12:01 Ísleifur Ingi Ævarsson greindist með eitilfrumukrabbamein í september síðastliðnum. Hann var viðmælandi í Ísland í dag ásamt foreldrum sínum en faðir hans ætlar meðal annars að hlaupa hálfmaraþon til styrktar krabbameinsveikum börnum núna í ágúst. Stikla „Fyrstu tvær vikurnar á spítalanum eru í þoku. Maður verður hræddur, að sjálfsögðu, og þetta var rosalega erfitt tímabil í byrjun, þegar við erum að reyna að lenda með þessar upplýsingar,“ segja hjónin Íris Alda Ísleifsdóttir og Ævar Ólafsson um það þegar Ísleifur Ingi, yngri sonur þeirra, greindist með eitilfrumukrabbamein.
Hjónin eiga þrjú börn og deildu reynslu sinni af erfiðum verkefnum í Ísland í dag. Eldri sonur þeirra er með ADHD og greindist með einhverfurófsröskun fyrir nokkrum vikum. Ísleifur Ingi greindist með krabbameinið í september í fyrra og þau segja flókið að útskýra slíkt fyrir barninu sínu. „Við fengum bækur til að lesa fyrir hann og útskýrðum hvernig krabbamein virkar, hvað er að gerast í líkamanum og hvernig við ætluðum að vinna á þessu. Hann tók því furðu vel en ég vissi ekki almennilega hvort hann skildi þetta eða ekki. Svo komu spurningar eftir einhvern tíma. Fyrstu mánuðirnir voru erfiðastir, svo hefur þetta orðið hluti af þessu dagsdaglega hjá honum. Hann er vanur þessu og heldur bara áfram,“ segir Íris Alda. Það hefur mikið gengið á hjá fjölskyldunni og þau upplifa mun minni stuðning í kringum greiningar hjá eldri syninum. „Það er lítið verið að grípa mann þar og lítil vissa. Það er engin skömm í krabbameininu og þú verður partur af stærra batteríi þar sem þú hittir fólk og börn með krabbamein. Styrktarfélagið vinnur svo mikilvægt starf en það er búið til af foreldrum sem fóru í gegnum þetta. Við finnum ótrúlega mikinn stuðning frá þeim sem hjálpa með vegferðina og það er mikilvægt að vera ekki einn í þessu,“ segir Ævar og bætir við að hann og fjölskyldan reyni að leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Ævar stofnaði heimasíðuna Samstillt þar sem ýmis fræðsla um krabbameinið kemur fram, þar á meðal upplýsingar um réttindi foreldra og barna, alls kyns stuðningur og leiðbeiningar sem geta auðveldað aðstandendum að vera til staðar. Sömuleiðis ætlar hann að hlaupa hálfmaraþon til styrktar krabbameinsveikum börnum og klæðast þyngingarvesti. Ævar hefur þegar þetta er skrifað safnað um 1,2 milljónum króna til málefnisins. „Það er rosa margt sem fylgir því að greinast með krabbamein, miklar áhyggjur og barnið er undir sársauka sem maður getur ekki tekið í burtu. Þetta eru þungar birgðir á fjölskyldu og þyngingarvestið er myndlíking fyrir það.“ Íris fann sig í rómantíkinni og stofnaði verkefnið Bókakrydd. „Rómantíkin hefur það í för með sér að það endar yfirleitt allt vel. Það er rosalega gott að setjast niður með bók þar sem maður veit að það er bjart framundan. Svo er mjög gott fyrir taugakerfið og stressið að róa sig aðeins niður. Áður en Ísleifur greindist þá var maður smá á þrotum. Með eldra barnið, í hundrað prósent vinnu, með alla skólahittingana og allt sem allir þurfa að gera dagsdaglega, þetta er gríðarlegur hraði. Með Bókakryddi langar mig að reyna að hjálpa fólki að hægja aðeins á sér, setjast niður og lesa.“
Ísland í dag Krabbamein Reykjavíkurmaraþon Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Fleiri fréttir Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Sjá meira