Bandarískur meistari dæmdur í þriggja ára bann fyrir lyfjasvindl Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2026 11:32 Jonah Koech eftir sigur sinn í 1.500 metra hlaupi á Demantamótaröðinni í Rabat í Marokkó í fyrra. epa/JALAL MORCHIDI Jonah Koech, bandarískur meistari í 1.500 metra hlaupi, hefur verið úrskurðaður í þriggja ára keppnisbann eftir að hafa gengist við því að hafa brotið lyfjareglur.
Samkvæmt bandaríska lyfjaeftirlitinu (USADA) komst svindl Koechs upp eftir að mjög óvenjuleg blóðgildi sáust í líffræðilegu vegabréfi hans. Þar er fylgst með blóðgildum íþróttamanns yfir ákveðinn tíma til að greina merki um lyfjamisferli, jafnvel þótt viðkomandi hafi ekki fallið á lyfjaprófi. Í fyrra varð Koech bandarískur meistari í 1.500 metra hlaupi. Hann hefur nú verið sviptur þeim titli sem og öllum titlum sem hann vann frá 30. júlí 2025 og síðar. Það er dagsetning fyrsta óeðlilega blóðsýnis hans. Koech er á leið í þriggja ára bann og má ekki snúa aftur til keppni fyrr en í júlí 2029. Blóðsýnin úr Koech voru tekin fyrir og eftir bandaríska meistaramótið utanhúss síðasta sumar. Á mótinu í fyrra varð Koech hlutskarpastur í 1.500 metra hlaupi. Þar hafði hann meðal annars betur gegn Ólympíumeistaranum í greininni, Cole Hocker. Koech er fæddur í Kenía en fluttist til Bandaríkjanna til að fara í háskóla. Hann fékk bandarískan ríkisborgararétt 2019 og hefur keppt fyrir hönd Bandaríkjanna á alþjóðlegum mótum síðan 2021.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Sjá meira