Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Lovísa Arnardóttir skrifar 10. ágúst 2026 15:03 Sævar Helgi og félagar hafa selt um 300 þúsund sólmyrkvagleraugu en munu ekki fá fleiri fyrir almyrkva á miðvikudag til að selja. Samsett Sólmyrkvagleraugun eru uppseld víða og ólíklegt að von sé á fleirum fyrir almyrkva næsta miðvikudag. Sævar Helgi Bragason segir gleraugun uppseld á solmyrkvagleraugu.is, og ekki sé von á fleirum. Sveitarfélög eru mörg að gefa fyrir börn og mörg fyrirtæki hafa auglýst gleraugu fyrir viðskiptavini. „
Við fengum auka tíu þúsund gleraugu síðasta föstudag og þau fóru öll á einum degi,“ segir Sævar Helgi í samtali við fréttastofu. „Við erum uppseldir og fáum ekkert meira í bili,“ segir hann en fyrirtækið er búið að selja í heildina um 300 þúsund gleraugu sjálft á heimasíðu sinni og til fyrirtækja. Hann segir gleraugnasöluna mikilvæga og hann og félagar hans í samtökunum hafi getað sinnt fræðslu og keyptu nýverið sjónauka og gáfu öllum skólum í Reykjanesbæ. „Í samvinnu við Reykjanes jarðvang, Kadeco og atNorth gagnaverið gefum við í sameiningu öllum skólum á Reykjanesskaga Seestar S30 Pro snjallsjónauka. Kennarar munu sömuleiðis frá námskeið til að læra á sjónaukann og nýta til kennslu, sem og tilbúið námsefni til að nýta hann í. Meðal þess er að mæla snúning sólar, stærð sólbletta, kvartilaskipti tunglsins, stærð gíga og hæð fjalla á tunglinu svo fátt eitt sé nefnt. Sjónaukanum er ætlað að hjálpa til við að efla náttúrufræðikennslu í skólum og kveikja vonandi áhuga nemenda,” sagði hann í færslu í Facebook-hópnum Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026 í gær. Hann segir „galið“ að hugsa til þess að um 300 þúsund manns verði með gleraugu frá þeim þegar myrkvinn verður á miðvikudag. Sævar Helgi segir í samtali við fréttastofu að líklega sé enn hægt að fá gleraugu hjá einhverjum fyrirtækjum og verslunum. Hann viti af gleraugum í Forlaginu en við almenna leit blaðamanns á netinu má sjá að þau eru uppseld líka í vefverslun A4 og Elko en eru fáanleg hjá Dynjanda. Sævar Helgi segir þau fylgja með bók sinni Sólmyrkvar og fólk geti því verslað bókina, fræðst um sólmyrkva og fengið gleraugu með. Sævar Helgi segir auðvitað líka hægt að deila. „Það gleymist oft,“ segir hann. Sveitarfélög eru mörg að gefa börnum gleraugu og eru þau fáanleg á bókasöfnum í Reykjavík og sundlaugum í Hafnarfirði líka. Tryggingarfélög og bankar hafa líka auglýst gleraugu fyrir sína viðskiptavini. Vís greindi þó frá því fyrir helgi að þau hefðu klárast hjá þeim. Þá hefur fjöldi fyrirtækja gefið starfsmönnum sínum merkt gleraugu.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira