Innlent

Slökkvi­lið brást við til­kynningu um reyk

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Bæði sjúkrabílar og lögreglan voru kölluð út.
Bæði sjúkrabílar og lögreglan voru kölluð út. Vísir/Sigurjón

Töluvert sírenuvæl vakti athygli íbúa þegar slökkviliðið brást við tilkynningu úr Mjölnisholti nærri miðbæ Reykjavíkur. 

Slökkviliðið fékk tilkynningu um reyk frá tækjabúnaði í húsnæði við Mjölnisholt, staðfestir Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

„Við sendum alla af stað en það er búið að draga helling úr viðbragði,“ segir Guðjón.

„Það voru einhverjar bréfþurrkur sem hafði kviknaði í en það var búið að slökkva.“

Slökkviliðsmennirnir sjá um reykræstingu. Atvikið var ekki talið eins alvarlegt og búist var við. Sjúkrabílar og lögreglan voru einnig kölluð til.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×