Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2026 22:01 Joseph Parker má nú berjast á ný en hann er fyrrum heimsmeistari í þungavigt. Getty/Hannah Peters Joseph Parker, fyrrverandi heimsmeistari í þungavigt, hefur fengið leyfi til að keppa á ný eftir að bráðabirgðabanni hans vegna jákvæðs kókaínprófs var aflétt.
Hinn 34 ára gamli Nýsjálendingur var prófaður af lyfjaeftirlitssamtökunum VADA þann 25. október en sama kvöld tapaði hann fyrir Bretanum Fabio Wardley í O2 Arena í London. Parker féll einnig á lyfjaprófi breska lyfjaeftirlitsins snemma morguns þann 26. október. „Það gleður mig að staðfesta að bráðabirgðabanni mínu hefur verið aflétt og ég verð kominn aftur í hringinn innan skamms,“ sagði Joseph Parker. Hann átti yfir höfði sér allt að tveggja ára bann en ákvörðun um refsingu hefði verið tekin af UKAD og breska hnefaleikasambandinu (BBBoC). View this post on Instagram A post shared by BBC SPORT (@bbcsport) Nýsjálendingurinn hefur afplánað þriggja mánaða bann en hann hefur ávallt neitað því að hafa vísvitandi tekið inn ólögleg efni. Næringarfræðingur hans átti sökina á því að leifar af kókaíni fundust í lyfjaprófi hans en þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins. Parker tókst að afla nægilegra sönnunargagna til að sýna fram á að óhagstæð niðurstaða úr lyfjaprófi hans væri afleiðing snertingar við kókaín sem næringarfræðingur hans notaði. Í yfirlýsingu frá UKAD kom fram að næringarfræðingurinn sem Parker hafði ráðið til að undirbúa bardaga sinn við Wardley væri „reglulegur neytandi kókaíns“. UKAD sagði: „Þann 6. mars 2026 lagði hr. Parker fram sönnunargögn fyrir UKAD þar sem hann hélt því fram að óhagstæð niðurstaða úr greiningu væri afleiðing snertingar hans við kókaín sem næringarfræðingurinn sem hann hafði ráðið til að undirbúa bardagann notaði.“ Bardagaskrá Parkers í atvinnumennsku er 36 sigrar og fjögur töp. Hann var WBO-heimsmeistari í þungavigt frá 2016 til 2018 áður en hann tapaði titlinum fyrir Bretanum Anthony Joshua í Cardiff.
Box Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira