Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 6. ágúst 2026 22:01 Sigurður Heiðar Wium yfirflugsstjóri hjá Landhelgisgæslunni segir þörf á að stórefla flota gæslunnar og koma upp annarri bækisstöð út á landi. Vísir/Bjarni Tvöfalda þyrfti flota Landhelgisgæslunnar og koma upp annarri bækistöð á landsbyggðinni ef vel ætti að vera að mati yfirflugsstjóra gæslunnar. Yfirvöld hafi verið jákvæð fyrir slíkri stækkun en nú reyni á efndir. Mikil aukning varð á útköllum hjá gæslunni í sumar,.
Landhelgisgæslan er með þrjár björgunarþyrlur á sínum vegum sem sinna leit, björgun, sjúkraflugi og neyðarútköllum á landi og sjó. Aðeins tvær þeirra hafa verið notaðar undanfarið þar sem verið er að yfirfara þá þriðju. Sigurður Heiðar Wium yfirflugmaður gæslunnar segir að útköll hafi aukist mikið í sumar. „Það hefur verið mikið að gera hjá okkur í sumar. Sérstaklega í júlí þegar útköllum fjölgaði um fjörutíu prósent milli ára. Mikið var um slys og veikindi,“ segir Sigurður. Oftast sé um alvarleg atvik að ræða þegar þyrlur séu kallaður út. „Yfirhöfuð eru aðstæður mjög alvarlegar þegar við erum kölluð út. Oftast er um að ræða slys en svo er líka kallað á okkur þegar aðrir viðbragðsaðilar komast ekki að fólki í neyð. Við höfum t.d. farið mörgum sinnum á Laugaveginn sem er vinsæl gönguleið. Þá er nokkuð mikið af útköllum vegna slysa sem verða á vegum úti á landi. Vegakerfið gefur nokkuð mikið af útköllum,“ segir hann. TF-Gró ein af þremur björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar. Vísir/Bjarni Þörf á að stórefla gæsluna Sigurður segir að aukið álag kalli á aukið umfang. „Við erum t.d. núna með eina af þremur þyrlum í skoðun. Ef vel ætti að vera þyrftum við að vera í heild með fimm til sex þyrlur, tvær flugvélar í stað einnar og þyrftum örugglega fleiri skip. Þá þyrftum við að vera með aðra bækistöð á landsbyggðinni,“ segir Sigurður. Stjórnvöld hafi sýnt málinu áhuga. „Það er mikil jákvæðni hjá öllum sem við ræðum við um að koma upp þyrlubækisstöð úti á landi og nú er Akureyri í umræðunni. Til þess að hún verði að veruleika þurfum við bækistöð, mannskap og aukaflota,“ segir hann að lokum.
Landhelgisgæslan Lögreglumál Tengdar fréttir Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss nærri Fosshóli í Þingeyjasveit. Ökumaðurinn ók fram af fjögurra metra hengju. 5. ágúst 2026 12:44 Slasaðist á fæti uppi á hálendi Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar sækir göngumann á hálendi sem slasaðist á fæti í nágrenni við Laugaveg. Maðurinn er milli Hrafntinnuskers og Álftavatns. 1. ágúst 2026 13:40 Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna manns sem hafði slasast alvarlega á fæti eftir fall í Vestmannaeyjum. 1. ágúst 2026 08:15 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss nærri Fosshóli í Þingeyjasveit. Ökumaðurinn ók fram af fjögurra metra hengju. 5. ágúst 2026 12:44
Slasaðist á fæti uppi á hálendi Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar sækir göngumann á hálendi sem slasaðist á fæti í nágrenni við Laugaveg. Maðurinn er milli Hrafntinnuskers og Álftavatns. 1. ágúst 2026 13:40
Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna manns sem hafði slasast alvarlega á fæti eftir fall í Vestmannaeyjum. 1. ágúst 2026 08:15