Körfubolti

Ár­menningar semja við fyrrum Íslandsmeistara

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diamond Battles fagnar titlinum með því að sitja fyrir framan Íslandsmeistarabikarinn vorið 2025.
Diamond Battles fagnar titlinum með því að sitja fyrir framan Íslandsmeistarabikarinn vorið 2025. Vísir/Hulda Margrét

Körfuknattleiksdeild Ármanns hefur samið við bandaríska bakvörðinn Diamond Battles um að leika með meistaraflokki félagsins á komandi keppnistímabili í Bónus deild kvenna.

Íslenskir körfuboltaunnendur þekkja Diamond Battles vel en hún lék með Haukum tímabilið 2024/2025 og varð Íslandsmeistari með liðinu.

Battles skoraði að meðaltali 15,9 stig, tók 4,9 fráköst, gaf 3,4 stoðsendingar og stal boltanum 2,6 sinnum í leik með Haukum í deildarkeppninni en í úrslitakeppninni spilaði hún enn betur þegar hún skoraði 17 stig að meðaltali, tók 5,0 fráköst og gaf 4,5 stoðsendingar.

Hún átti stóran þátt í Íslandsmeistaratitli Hauka og var meðal annars með 20 stig og 7 stoðsendingar í oddaleiknum um titilinn.

„Með komu Diamond Battles bætist reynslumikill og sigursæll leikmaður í leikmannahóp Ármanns. Félagið lítur á komu hennar sem mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu liðsins og undirstrikar metnað sinn fyrir komandi tímabil í Bónus deildinni,“ segir í frétt á miðlum Ármanns.

Battles lék á sínum tíma með University of Central Florida og University of Georgia í NCAA-deildinni þar sem hún hlaut meðal annars nafnbótina varnarmaður ársins í AAC-deildinni og var valin í varnarlið SEC-deildarinnar. Hún hefur síðan leikið atvinnumennsku í Evrópu og fest sig í sessi sem öflugur bakvörður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×