Von á hóflegum hagvexti næstu árin Árni Sæberg skrifar 6. ágúst 2026 05:01 Björn Brynjúlfur Björnsson er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Vísir/Vilhelm Samkvæmt nýrri skýrslu Viðskiptaráðs á hagkerfinu má búast við hóflegum hagvexti á næstu misserum þrátt fyrir þráláta verðbólgu og vaxandi atvinnuleysi. Fjölbreytni útflutnings haldi áfram að aukast og ferðaþjónustan standi sterkum fótum þrátt fyrir ýmsar áskoranir.
Viðskiptaráð hefur gefið út skýrsluna The Icelandic Economy. Skýrslan er gefin út bæði á ensku og í íslenskri þýðingu en í henni er farið yfir íslenskt hagkerfi og stöðu efnahagsmála hérlendis. Meðal annars er þar fjallað um þróun helstu skammtímahagvísa, stöðu og horfur í efnahagslífinu, utanríkisviðskipti, verðbólguþróun og gengi gjaldmiðla, auk annarra atriði sem varða efnahagsmál. Hóflegur vöxtur Í samantekt skýrslunnar á vef Viðskiptaráðs segir að eftir sögulegt hagvaxtarskeið í kjölfar viðsnúnings eftir COVID-faraldurinn, hafi hagkerfið tekið að kólna. Hagvöxtur hafi mælst 1,3 prósent árið 2025, þá geri spár ráð fyrir 1,6 prósenta hagvexti árið 2026 og að hagvöxtur verði að jafnaði 2 prósent árin tvö þar á eftir. Viðskiptaráð Íslands Aukning í atvinnuleysi sé annað merki um kólnun í hagkerfinu, en samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands hafi árstíðarleiðrétt atvinnuleysi verið 7,6 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Hluta þeirrar aukningar megi rekja til umbóta í mælingum á atvinnuleysi meðal innflytjenda. Engu að síður sé skráð atvinnuleysi á uppleið og merki um að fyrirtæki haldi aftur af sér þegar kemur að ráðningum. Ýmsar áskoranir í ferðaþjónustu Þá segir að ferðaþjónustan hafi náð sér á strik eftir heimsfaraldurinn og hlutdeild hennar í landsframleiðslu hafi numið 8,8 prósentum árið 2025, og hafi ekki mælst hærri, þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Megi þar einkum nefna fall flugfélagsins Play, sem hafi valdið framboðsskelli á flugferðum til og frá landinu undir lok árs 2025. Þá hafi átökin í Mið-Austurlöndum valdið verðhækkunum á eldsneyti með tilheyrandi áhrifum á rekstrarkostnað flugfélaga. Sólmyrkvinn í ágúst veiti greininni byr í seglinn með aukinni eftirspurn til landsins. Ísland sé dýr áfangastaður í samanburði við önnur lönd, sem rýri samkeppnishæfni greinarinnar. Viðskiptaráð Íslands Aðrar útflutningsgreinar utan grunnatvinnuvega þjóðarinnar, það er sjávarútvegs, ferðaþjónustu og álframleiðslu, hafi staðið undir 24 prósentum af útflutningstekjum þjóðarbúsins en aðeins ferðaþjónusta vegi þyngra. Til að tryggja efnahagslegan stöðugleika þarf að fjölga útflutningsstoðum og tryggja hagfelld rekstrarskilyrði greina sem eru ekki háðar náttúruauðlindum. Vel menntað vinnuafl og hvetjandi umhverfi til nýsköpunar styðja við það markmið. Efst á fjórum listum Ísland standi framarlega á mörgum samfélagslegum mælikvörðum. Landið standi fremst þegar kemur að jafnrétti kynja, friði, lífskjörum og sé annað hamingjusamasta land í heimi, á eftir Finnlandi. Viðskiptaráð Íslands Ísland sé í 22. sæti af 70 löndum á samkeppnishæfnislista IMD og það sé sjö sætum neðar en í fyrra. Þrátt fyrir lækkunina í ár hafi samkeppnishæfni aukist verulega frá árinu 2010, þegar Ísland sat í 30 sæti.
Efnahagsmál Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira