Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Birgir Olgeirsson skrifar 4. ágúst 2026 11:08 Estefanía Arboleda Herrera, Jeovvany Martínez Quinchía og Elisabeth Martínez Quinchia hafa verið í gæsluvarðhaldi hér á landi frá 28. júlí vegna gruns um innflutning fíkniefna. Aðsend Þrír kólumbískir ferðalangar sem aðstandendur höfðu ekkert heyrt frá í tæpa viku hafa verið í gæsluvarðhaldi hér á landi frá komunni til Íslands vegna gruns um innflutning á fíkniefnum.
Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum, segir þremenningana hafa verið í haldi frá 28. júlí. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um rannsóknina eða ætluð fíkniefni að svo stöddu. Ekkert heyrst frá komudeginum Greint var frá því í gær að aðstandendur fólksins hefðu ekkert heyrt frá því frá komunni til Íslands. Um er að ræða hina 34 ára Estefaníu Arboleda Herrera, hinn 54 ára Jeovvany Martínez Quinchía og eiginkonu hans, Elisabeth Martínez Quinchia, sem er 57 ára. Þau eru frá Medellín í Kólumbíu og höfðu verið á ferðalagi um Evrópu. Í tilkynningu sem barst fréttastofu í gærkvöldi kom fram að síðast hefði frænka þeirra rætt við þau eftir að þau lentu á Keflavíkurflugvelli þriðjudaginn 28. júlí. Þau hefðu þá verið að leggja af stað til Reykjavíkur. Þremenningarnir áttu bókaða gistingu á Center Hotels Plaza en að sögn aðstandenda skiluðu þau sér ekki þangað. Farsímar þeirra virtust jafnframt hafa verið óvirkir frá komudeginum, sem aðstandendur sögðu mjög óvenjulegt. Leituðu upplýsinga á samfélagsmiðlum Aðstandendur birtu færslur í Facebook-hópnum Latinos en Islandia í von um að fá upplýsingar um ferðir þremenninganna. Af ummælum undir færslunum að dæma höfðu þau ætlað að dvelja hér á landi í um tvo sólarhringa og halda síðan aftur til Spánar. Nú liggur fyrir að þau hafa verið í haldi hér á landi allan þann tíma.
Lögreglumál Keflavíkurflugvöllur Smygl Fíkniefnabrot Tengdar fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Fjölskyldumeðlimir þriggja kólumbískra ferðalanga hafa ekkert heyrt frá þeim í rétt um viku en þau höfðu verið á ferðalagi um Evrópu þegar þau lentu á Íslandi þriðjudaginn 28. júlí. Lögreglan á Suðurnesjum veit hvar þau eru niðurkomin. 3. ágúst 2026 21:52 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira
Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Fjölskyldumeðlimir þriggja kólumbískra ferðalanga hafa ekkert heyrt frá þeim í rétt um viku en þau höfðu verið á ferðalagi um Evrópu þegar þau lentu á Íslandi þriðjudaginn 28. júlí. Lögreglan á Suðurnesjum veit hvar þau eru niðurkomin. 3. ágúst 2026 21:52