Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar 3. ágúst 2026 12:31 Umræða um vexti hefur verið áberandi í aðdraganda þjóðaratkvæðisgreiðslu um viðræður um inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Samanburður á vaxtastigi Íslands og Evrópu hefur oft verið villandi þar sem sjaldnast er gerður greinarmunur á nafn- og raunstærðum, eða skammtíma- og langtímavöxtum. Að auki stendur vaxtaþróun á heimsvísu á tímamótum. Lágvaxtatímabili eftirhrunsáranna virðist lokið með hækkandi skammtíma- og langtímavöxtum í flestum þróuðum ríkjum. Í þessu umhverfi er engu að síður mikill munur á stýrivöxtum Seðlabanka Íslands (7,75%) og Seðlabanka Evrópu (2,25%). Stýrivextir ráða miklu um ákvörðun vaxta á óverðtryggðum lánum með fljótandi vöxtum, hvort sem um er að ræða fasteignalán heimila eða fyrirtækjalán. Nafnvextir og raunvextir Óverðtryggðir nafnvextir segja einungis hálfa sögu út frá sjónarhóli lántaka. Höfuðstóll óverðtryggðra lána rýrnar með verðbólgu og því mælist raunverulegur kostnaður láns í raunvöxtum - vöxtum að frádreginni verðbólgu. Á meðal G20-ríkja hefur Argentína bæði hæstu stýrivextina (33%) og lægstu raunvextina (-4,5%) sem sýnir að jafnvel mjög háir nafnvextir geta verið í hag skuldara á kostnað lánveitenda og sparifjáreigenda. Önnur G20-ríki, eins og Tyrkland, Brasilía og Rússland, búa við bæði háa nafnvexti og háa raunvexti (5 til 10%) á meðan Kanada og evruríkin eru hins vegar með lægstu raunvextina á eftir Argentínu, eða um -0,5%, sem í tilfelli evrunnar er að einhverju leyti vitnisburður um daprar hagvaxtarhorfur í Evrópusambandinu þessa stundina. Á Íslandi mælist verðbólga nú 5,3% og eru raunvextir stýrivaxta því um 2,5%, sem er nokkuð hátt í alþjóðlegum samanburði. Síðustu tíu ár hafa stýrivextir Seðlabanka Íslands verið um 5,1% að meðaltali (um 0,8% raunvextir) samanborið við um -2,0% raunvexti á evrusvæðinu á sama tímabili - í báðum tilfellum sögulega lágt en þó einkum í tilfelli Evrópu og litast meðal annars af heimsfaraldrinum og verðbólgunni í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Óvissa framundan Söguleg tölfræði hefur lítið forspárgildi um þessar mundir vegna mikillar óvissu um næstu skref seðlabanka, þar á meðal hins evrópska, bandaríska og íslenska. Flest bendir til þess að þrálát verðbólga — sem hefur fengið nýtt súrefni vegna átakanna við Hormússund — ásamt miklum fjárlagahalla og aukinni fjárfestingarþörf (m.a. vegna hernaðarmála, gervigreindar og grænnar orku) muni styðja við aðhaldssama stefnu seðlabanka næstu misseri. Birtingarmynd þess er veruleg hækkun lengri tíma raunvaxta, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á raunvöxtum á Íslandi, í Bandaríkjunum og í Evrópu til skemmri og lengri tíma:* Því hefur verið haldið fram að raunvextir á Íslandi séu „4,5% til 5,5%“ (t.d. af Gauta Eggertssyni hagfræðingi í Pallborði Vísis, 26. júlí 2026). Líkt og taflan sýnir er erfitt að rökstyðja þá fullyrðingu. Raunvextir á Íslandi (miðað við ríkisskuldabréf) eru 1,2 til 2,4 prósentustigum hærri en í Evrópu og Bandaríkjunum til millilangs tíma (5 ár) en til lengri tíma er munurinn umtalsvert minni. Í raun eru langtíma fjármögnunarkjör íslenska ríkisins í krónum nokkuð betri en þess bandaríska í dollurum um þessar stundir og litlu lakara en hjá franska ríkinu. Þrátt fyrir það geta íslensk heimili ekki tekið langtímalán sem miðast við langa nafn- og raunvexti vegna innleiðingar og „gullhúðunar“ á Evrópureglugerðum um uppgreiðslugjöld. Því standa íslenskum heimilum einungis til boða lán sem miðast við styttri vexti. Raunveruleg vaxtabyrði íbúðalána Vextir á fastvaxta íbúðalánum á Íslandi eru fastir til að hámarki fimm árum í senn. Í dag bera þau á bilinu 3,6% til 4,4% verðtryggða vexti (raunvexti), samanborið við um 1,4% raunvexti evrópskra íbúðalána í Þýskalandi, Frakklandi og Spáni, sem dæmi. Vextirnir hér eru hins vegar á svipuðum slóðum og í Bandaríkjunum, þar sem algengir húsnæðisvextir eru í kringum 6,5% (um 4% raunvextir).** Gefið að raunvaxtamunur íbúðalána í krónum og evrum sé um 2,5 prósentustig, þýðir það að evrópskur lántakandi á 25 ára jafngreiðsluláni greiðir um 22% minna að raunvirði yfir líftíma lánsins, eða rétt undir eitt prósent á ári. Það er marktækur munur, en tekur um leið ekki mið af öðrum þáttum sem hafa áhrif á greiðslugetu, svo sem fasteignaverði, ráðstöfunartekjum og heildarkostnaði við íbúðakaup. Sem dæmi er húsnæðiskostnaður á Íslandi samkvæmt OECD um 22% af heildarneyslu, sama og á Spáni en lægra en í Þýskalandi (25%) og Frakklandi (26%) og einu prósenti lægra en meðaltal ESB og OECD-ríkja (23%). Til að fá raunsæja mynd af vaxtastigi milli ríkja verður að horfa til raunvaxta til skemmri og lengri tíma, ásamt því að líta til þess að heimili, fyrirtæki og hið opinbera búa við ólíkan aðgang að lánsfjármarkaði. Samanburður á nafnvöxtum einum og sér getur því verið verulega misvísandi. Um leið verður að hafa í huga hvaða ástæður leiða til mishás raunvaxtastigs. Í Evrópu hefur lítill þróttur í stærstu hagkerfum evrusvæðisins og lágur nafnlaunavöxtur átt þátt í að gera verkefni Seðlabanka Evrópu auðvelt — of auðvelt myndu sumir segja í ljósi mjög lágra sögulegra raunvaxta bankans, þótt þýskir langtímavextir hafi ekki verið jafnháir síðan 2011. Á Íslandi hefur hið gagnstæða gerst: mikill hagvöxtur, launahækkanir langt umfram verðlag og verðbólga sem hefur verið vel yfir markmiði Seðlabankans í um fimm ár. Hér, líkt og annars staðar, hefur seðlabankinn þurft að bregðast við með háum raunvöxtum. En líkt og árin fyrir heimsfaraldur sýna — þegar stýrivextir lækkuðu hér í 2,75% — verða svona háir raunvextir einungis tímabundnir ef jafnvægi næst aftur í hagstjórninni. Höfundur er sagnfræðingur og hefur starfað við íslenskan vaxtamarkað frá árinu 2006. * Stuðst er við frönsk ríkisskuldabréf sem hafa virkustu verðmyndun verðtryggðra skuldabréfa í Evrópu og sama lánshæfi og íslenska ríkið. Notast er við gögn úr seinasta útboði franska ríkisins á slíkum skuldabréfum frá 16. júlí. **Miðað er við 3,8% fasta vexti íbúðalána að jafnaði að teknu tilliti til kostnaðar í Þýskalandi, Frakklandi og Spáni, og væntingar um 2,4% verðbólgu næstu fimm ár samkvæmt könnun Seðlabanka Evrópu. Verðbólguvæntingar í Bandaríkjunum miða við 2,4% til fimm ára samkvæmt líkani Seðlabankans í Cleveland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Agnar Tómas Möller Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Skoðun Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun