Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Jón Þór Stefánsson og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 31. júlí 2026 12:09 Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, við skipið umtalaða, Bandero. Vísir/EInar „Þarna unnu menn eins og einn maður,“ segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, um aðgerð gæslunnar í samstarfi við sérsveitina við það að taka yfir skipið Bandero eftir að það hrelldi hvalveiðiskipið Hval 9 í gærkvöldi. Að hans sögn gekk aðgerðin, sem var erfið, skínandi vel.
Tuttugu og einn voru um borð í Bandero, skildist Georgi. Skipstjórinn og aðrir yfirmenn hafa verið handteknir. Símar og myndavélar voru teknar af skipverjum til þess að vernda rannsóknarhagsmuni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun nú taka við málinu frá Landhelgisgæslunni. „Landhelgisgæslu Íslands ber að halda uppi fullveldinu á hafinu í kringum landið. Í gær fengum við fregnir af erlendu skipi sem var komið inn í tólf mílna lögsöguna, án heimildar, og var að valda vandræðum hjá íslenskum sjómönnum á íslensku skipi. Það má segja að þeir hafi stofnað til verulegrar siglingahættu,“ segir Georg um ástæðu þess að Landhelgisgæslan hafi ákveðið að skerast í leikinn. Hann segir sjómenn á Hvali 9 hafa upplifað sig í hættu. „Já, þeir gerðu það. Þeir voru verulega slegnir.“ Hvernig ógnuðu Bandero-menn skipinu? Georg segir að áhöfn Bandero hafi ógnað Hvali 9 með því að kasta netadrósum og víraflækjum í skrúfu í skrúfu skipsins. „Það er ákaflega varasamt úti á sjó í vondu veðri. Þannig þarna var íslenskum sjómönnum ógnað. Í þessu sambandi skiptir engu máli hvaða afstöðu menn hafa til hvalveiða. Þetta er verkefni Landhelgisgæslunnar, að gæta að öryggi og halda uppi lögum og reglum,“ segir Georg, sem veit þó ekki til þess að Bandero-liðar hafi siglt utan í Hval 9. Þess má geta að Paul Watson, stofnandi samtakanna sem Bandero siglir fyrir, sagði í viðtali við fréttastofu í gærkvöldi að Bandero hafi ekki komist nægjanlega nálægt til þess að kasta neti í Hval 9. Lyginni líkast Líkt og áður hefur komið fram sendi gæslan bæði þyrlu og varðskipið Freyju á vettvang. Að sögn Georgs hlýddu skipverjar Bandero ekki þeim fyrirmælum sem Landhelgisgæslan beindi til þeirra. „Skipstjóri Bandero þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum, margítrekuðum, um að stöðva skipið, svara í talstöð, senda frá sér staðsetningarmerki, sem hann gerði ekki fyrr en hann var kominn út fyrir tólf mílurnar,“ segir Georg. Landhelgisgæslan eltist við Bandero á minni bátum. „Skipið Bandero sló ekkert af ferð, sigldu fulla ferð fimmtán mílur til hafs. Við þær aðstæður þurftu þessir vösku séraðgerðar- og sérsveitarmenn að príla um borð í skipið. Það má segja að það hafi verið lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi.“ Alvarleg og veruleg mótspyrna Að sögn Georgs veittu skipverjar Bandero ekki mótspyrnu þegar séraðgerðar- og sérsveitarmennirnir voru komnir um borð. „Nei, ekki þegar komið var um borð. En það er mótspyrna að hægja ekki á skipinu þegar ljóst er að löggæslumenn eru að leitast við því að komast um borð. Það er alvarleg mótspyrna og veruleg mótspyrna. En þegar komið var um borð var ekki vart við neina mótspyrnu.“ Georg segist ekki geta fullyrt neitt um hvort Bandero hafi sýnt af sér refsiverða háttsemi, en segist þó telja það afar líklegt. Hann á von á því að skipstjóri Bandero verði kærður.
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalveiðar Landhelgisgæslan Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira