Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. júlí 2026 11:57 Hildur Kolbrún dvelur í fjöldahjálparstöð í Talavera de La Reina. Vísir/Samsett Skógareldar sem geisað hafa vestur af Madrídarborg á Spáni hafa brennt um 750 ferkílómetra svæði í Sierra Oeste-fjallgarðinum. Tugum þúsunda hefur verið gert að yfirgefa heimili sín, þeirra á meðal Hildur Kolbrún Andrésdóttir sem hefur varið helginni á fjöldahjálparstöð.
Að sögn viðbragðsaðila hafa snarpir vindar til fjalla torveldað slökkvistarfið en hundruðir slökkviliðsmanna á bílum, þyrlum, flugvélum og öllu handtæku vinna allan sólarhringinn að því að ná tökum á eldinum. Meðal þeirra þúsunda sem rýmt hafa dvalarstaði sína í hlíðunum sunnan fjallanna og gista nú fjöldahjálparstöðvar er Hildur Kolbrún Andrésdóttir. Íbúar smáþorpanna eru að stórum hluta eldra fólk og sjálfboðaliðar á vegum Rauða krossins sjá til þess að allir fái lyfin sín.Hildur Kolbrún Andrésdóttir „Þetta byrjaði á laugardaginn byrjuðum við að finna reykjarlykt og sáum skýið koma, heiður himinn undir venjulegum kringumstæðum. Síðan um tíuleytið um kvöldið fengum við tilkynningu um að við yrðum að fara. Og svo fengum við smá tíma til að pakka niður því allra nauðsynlegasta og yfirgefa svæðið og lögreglan lokaði öllu,“ segir hún. Herinn kom að setja saman bedda Hildur Kolbrún dvelur nú með um þúsund öðrum í fjöldahjálparstöð í iðnsýningarskála í bænum Talavera de la Reina. Í einu horninu eru hundaeigendur króaðir af og restin dvelur á beddum sem raðað var skipulega um rýmið. „Hér situr bara fólk og bíður.“ Hildur fékk tilkynningu um það í morgun að mögulega fengi hún að snúa aftur heim í kvöld en ekkert er fast í hendi. Á meðan er líf og fjör í fjöldahjálparstöðinni og að öllu hugað, að sögn Hildar. „Hér er fólk frá Rauða krossinum og sjálfboðaliðar. Við fengum hermannabedda þannig að fyrst kom herinn hingað og setti þá saman, svo hurfu þau,“ segir hún. Öllu tjaldað til Greinilegt er að Spánverjinn er í góðri æfingu í viðbrögðum við eldum þar sem eftir fátið þegar fólkinu var smalað í stöðina hefur skipulagningin verið upp á tíu. Mat og vatni deilt út.Hildur Kolbrún Andrésdóttir „Fólk er eiginlega búið að búa um sig hérna. Það er ótrúlegt hvað fólk er fljótt að aðlagast. Svo sá ég áðan að það er prestur sem gengur hérna um. Það er hugað að öllu. Þetta er bara eins og lítið þorp hérna núna,“ segir Hildur. „Eina sem er er að þessir beddar eru ekki þeir þægilegustu.“
Spánn Íslendingar erlendis Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Sjá meira