Innlent

Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar. vísir/vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í dag til að sinna sjúkraflutningum vegna bráðra veikinda manns rétt vestan við Hellu. Hann var fluttur á Landspítalann í snatri. 

Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu.

„Þarna var í rauninni bara bráðaveikindatilfelli og lögregla aðstoðaði sjúkraflutninga sem voru að flytja viðkomandi undir læknishendur í Reykjavík á móti þyrlu sem kom og tók viðkomandi upp á flugvellinum á Selfossi.“

Slökkviliðið var kallað út vegna eldsvoða sem kom upp í ökutæki á Hellisheiðinni rétt fyrir ofan Kambana upp úr klukkan þrjú í dag. Ökumaðurinn hafði lagt bílnum fyrir utan veginn áður en eldur kom upp. Engan sakaði og ekki varð töf á umferð.

„Það kviknaði í bíl þarna upp úr klukkan þrjú í dag í Kömbunum. Ég veit ekki annað en að slökkvistarf hafi gengið vel og ég held að þetta sé í rauninni bara afgreitt,“ segir Einar.

Einar segir umferðina annars hafa gengið prýðilega það sem af er helgi þrátt fyrir tafir í kringum Selfoss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×