Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Agnar Már Másson skrifar 21. júlí 2026 18:58 Halla Tómasdóttir á helmingshlut í Sunnunesi ehf., sem á 25 prósent í Var ehf. Vísir/Vilhelm Sunnunes ehf., sem Halla Tómasdóttir forseti á ásamt forstjóranum Jóni Björnssyni, fær 50 milljónir króna í arð úr félaginu Var ehf. Í fyrra fékk félagið 200 milljónir króna í arð. Halla hefur áður sagst ekki koma að rekstri félagsins.
Heimildin greindi fyrst frá arðgreiðslunni en Var ehf. er í 25 prósenta eigu Sunnuness ehf., sem er í helmingseigu Höllu. Hinn helmingurinn er í eigu Jóns, sem er forstjóri Veritas. Halla hefur áður sagst ekki koma að rekstri Sunnuness með nokkrum hætti, þó hún væri annar eigendanna. Skömmu fyrir forsetakosningar 2024 sagði hún við Viðskiptablaðið að Jón stýrði alfarið félaginu. Í ársreikningi félagsins fyrir 2025 kemur fram að eigendur Vars hafi samþykkt 200 milljóna króna arðgreiðslu. Félag Höllu fær því 50 milljónir króna í arðgreiðslu. Aðrir hluthafar eru félögin Dalsárós, Granat og Viti fjárfestingarfélag sem eiga hvert um sig 25 prósenta hlut og fá því einnig 50 milljónir króna í arð. Jón Björnsson, forstjóri Veritas, fer með helmingshlut á móti Höllu forseta í Sunnunesi ehf. Í fyrra greiddu eigendur Vars sér út 800 milljónir króna í arð samkvæmt ársreikningi – þar af 200 milljónir til Sunnuness – vegna rekstrarársins 2024. Það ár hafði félagið selt hlut sinn í auglýsingaskiltafélögunum Billboard, BBI og Dengsa ehf. Í dag á félagið 58,4 prósenta hlut í eignarhaldsfélaginu Northern Limit, 50 prósenta hlut í fasteignafélaginu Þorláki og 34,1 prósenta hlut í leigufélaginu Síðumúli 27 ehf. Eignarhlutir í öðrum félögum eru samtals færð á 851 milljón króna. Eigið fé er bókfært á 898 milljónir króna. Hagnaður af rekstri Vars á árinu 2025 nam að fjárhæð 134 milljónum króna. Þetta má helst rekja til söluhagnaðar á eignarhlut í félögum og gangvirðisbreytinga eignarhluta, en einnig til vaxtartekna. Ársreikningur Sunnuness fyrir 2025 liggur ekki fyrir. Stjórn félagsins lagði til í fyrra að greiddur yrði arður úr félaginu að fjárhæð 40 milljóna króna á árinu 2025, samkvæmt ársreikningi fyrir 2024. Gangi það eftir sem skyldi má gera ráð fyrir að 20 milljónir af því hafi runnið til forsetans, þar sem hún á helmingshlut í félaginu.
Halla Tómasdóttir Forsetakosningar 2024 Forseti Íslands Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira