Viðskipti innlent

Fannar stofnar ráð­gjafa­fyrir­tæki

Árni Sæberg skrifar
Fannar Jónasson var bæjarstjóri Grindavíkur lengi vel.
Fannar Jónasson var bæjarstjóri Grindavíkur lengi vel. Vísir/Arnar

Fannar Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur, hefur sett á fót samlagsfélagið Ráðagjörð slf. í félagi við Guðmund Einarsson. Félagið er almennt samlagsfélag og tilgangur þess er viðskiptaráðgjöf og önnur rekstrarráðgjöf.

Í auglýsingu þess efnis, sem birt var í Lögbirtingablaðinu í dag, segir að félagið geti einnig annast rekstur, kaup og sölu fasteigna. Þá segir að Fannar sé ábyrgðarmaður félagsins og Guðmundur samlagsaðili.

Nýverið var greint frá því að Reykjanesbær hefði gert verktakasamning við Fannar, sem mun leiða sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi til að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta rekstur bæjarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×