Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. júlí 2026 13:04 Helbrigðisstofnun Austurlands er með útibú á Egilsstöðum en skurðstofunni í Neskaupstað hefur verið lokað. Vísir/Vilhelm Tugir verðandi mæðra á Austurlandi þurfa að leita á önnur sjúkrahús til að fæða börnin sín vegna framkvæmda á sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Forstjóri segir lokunina ekki æskilega en um nauðsynlegar framkvæmdir sé að ræða.
Um tuttugu verðandi mæður á Austurlandi þurfa að leita annaðhvort til Akureyrar eða Reykjavíkur vegna framkvæmda við Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað. Þetta er annað skipti á tveimur árum sem barnshafandi konur geta ekki fætt börn nærri heimili sínu vegna framkvæmda á sjúkrahúsinu. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands segir að um nauðsynlegar framkvæmdir sé að ræða. „Þetta hefur mikil áhrif á fæðingarþjónustuna og það er ekki hægt að framkvæma skurðaðgerðir meðan á lokuninni stendur,“ segir Þórarna Gró Friðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. „Við vitum að þetta veldur skjólstæðingum okkar óþægindum og ég hef fullan skilning á því. En á móti þá eru þetta bara nauðsynlegar framkvæmdir og mikilvægar til þess að bæta aðstöðuna fyrir skjólstæðinga og starfsfólk til framtíðar.“ Ljósmæður áfram á vakt Í tilkynningu segir að skurðstofan verði lokuð til fjórtánda ágúst og hafa ljósmæður verið fjölskyldum innan handar við að reyna aðstoða barnshafandi konur. Neyðarþjónusta verður áfram tryggð á svæðinu. „Það eru sem sagt skurð- og svæfingalæknar sem geta aðstoðað við einfaldari inngrip í slævingu ef þörf krefur og það eru ljósmæður áfram á vakt á tímabilinu,“ segir hún. „Það er náttúrulega aldrei æskilegt að þurfa að skerða þjónustuna sama hver ástæðan er og eins og ég sagði áður þá gerum við okkur fulla grein fyrir því að þetta getur valdið óþægindum en á sama tíma eru þessar framkvæmdir nauðsynlegar og mikilvægar.“
Heilbrigðisstofnun Austurlands Heilbrigðismál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira