Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson skrifar 17. júlí 2026 09:31 Um fjögur hundruð þúsund Íslendingar gætu haft svipað formlegt úrslitavægi í ráði Evrópusambandsins og um fimmtán milljónir Þjóðverja. Samt er því stöðugt haldið fram að Ísland yrði áhrifalaust vegna smæðar sinnar. Sú fullyrðing horfir fram hjá aðalatriðinu. Í dag er atkvæðavægi Íslands í þessum atkvæðagreiðslum núll. Við tökum upp mikið af regluverki Evrópusambandsins í gegnum EES og án atkvæðisréttar. Spurningin er því ekki hvort fámenn þjóð fái nógu mikil áhrif, - heldur hvort eitthvað sé meira en ekkert. Það er rétt að fjölmenn ríki hafa meira vægi en fámenn. En mannfjöldinn ræður ekki einn. Um 80% löggjafar Evrópusambandsins eru samþykkt með auknum meirihluta, svokölluðu QMV-kerfi (e. Qualified Majority Voting). Þá þarf stuðning minnst 55% aðildarríkjanna og að þau ríki standi samanlagt fyrir minnst 65% íbúa sambandsins. Væri Ísland 28. ríkið þyrfti því stuðning að minnsta kosti 16 ríkja. Í þeim málum sem eftir standa gildir ýmist einróma samþykki, þar sem hvert ríki hefur fullt neitunarvald, eða einfaldur meirihluti, þar sem hvert ríki hefur eitt atkvæði. Kerfið sameinar meðvitað tvær meginreglur lýðræðis, - vægi fólksfjöldans annars vegar og jafnræði sjálfstæðra ríkja hins vegar. Þýskaland vegur þungt vegna mannfjöldans, en Ísland teldist jafnframt eitt fullgilt ríki, - rétt eins og Þýskaland. Hvað þýðir þetta í QMV-kerfinu? Banzhaf-valdavísitalan er aðferð til að mæla hversu oft afstaða tiltekins ríkis ræður úrslitum. Farið er yfir allar mögulegar samsetningar ríkja í kosningum og talið hversu oft tillaga stendur eða fellur með atkvæði hvers ríkis. Aðferðinni hefur meðal annars verið beitt við rannsóknir á valddreifingu innan ráðs Evrópusambandsins. Þjóðverjar eru um 209 sinnum fleiri en Íslendingar, - um 18,55% íbúa Evrópusambandsins á móti 0,09% Íslands. Samkvæmt Banzhaf-útreikningnum hefði Þýskaland samt aðeins tæplega sexfalt úrslitavægi á við Ísland. Deilt niður á íbúa hefði hver Íslendingur þannig um 37-falt vægi á við hvern Þjóðverja. Með öðrum orðum, - formlegt úrslitavægi Íslands væri á við vægi um 15 milljóna Þjóðverja. Það er nálægt samanlögðum íbúafjölda fimmtán stærstu borga Þýskalands, - allt frá Berlín, Hamborg og München niður til Nürnberg og Duisburg. Ísland yrði reyndar ekki „stórasta land í heimi“ í evrópsku samstarfi. En áhrifalaust yrði það ekki heldur. Þetta þýðir ekki að Ísland gæti ráðið ferðinni eitt. Engin þjóð getur það. Banzhaf-vísitalan mælir formlegt úrslitavægi, ekki öll pólitísk áhrif. Raunveruleg áhrif ráðast einnig af undirbúningi, sérþekkingu, bandalögum, hæfni til að vinna málum fylgi og hlutfallslegu mikilvægi mála fyrir einstök lönd þar sem fá stór hagsmunamál verður styrkur. Smáríki geta því haft meiri áhrif en höfðatalan ein gefur til kynna, - en aðeins með því að mæta til leiks. Menn hafa takmörkuð áhrif á leikinn fyrir framan sjónvarpið. Það sem Trump skilur um smáríki, - en Áfram Ísland ekki Trump-stjórnin hefur dregið Bandaríkin út úr alþjóðastofnunum og samningum sem hún telur binda hendur Bandaríkjanna. Í janúar 2026 fyrirskipaði Hvíta húsið frekari úrsagnir úr alþjóðastofnunum, samningum og sáttmálum af þeim sökum. Hver svo sem afstaðan er til stefnunnar vestanhafs afhjúpar hún kjarna málsins. Sameiginlegar reglur og náið samstarf takmarka svigrúm hins stóra og sterka. Stórveldi hafa vald með eða án reglna. Smáríki hafa formlegt vald aðeins innan þeirra. Það sem stórveldið sér sem fjötur er styrkur smáríkisins. Banzhaf-vísitalan sannar ekki að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Hún sannar heldur ekki að aðildarsamningurinn yrði góður. En hún sýnir að fullyrðingin um að Ísland yrði áhrifalaust vegna smæðar sinnar stenst ekki. Valið í ágúst stendur ekki á milli að ráða öllu eða engu. Það snýst heldur ekki um að trúa því fyrirfram að aðildarsamningurinn verði góður, - það snýst um hvort hefja eigi viðræðurnar á ný, fá niðurstöðuna á borðið og leyfa þjóðinni síðan að meta hagsmuni sína. Það lokamat myndi eiga sér stað eftir 2-3 ár og ómögulegt að spá fyrir um nú hverjar aðstæður verða þá. Samtökin Áfram Ísland segjast vilja verja sjálfstæði og áhrif Íslands. En við aukum hvorki áhrif okkar né valkosti með því að útiloka þá fyrirfram. Með því að hafna því að hefja viðræður á ný fáum við aldrei að vita hvort eitthvað, og þá hvað, stendur Íslandi til boða. Það er ekki þannig sem Ísland kemst Áfram, - það er meira „Stop! Lok, lok og læs Ísland“. Ég vil vita meira, - þess vegna ætla ég að segja JÁ í ágúst. Eina talan sem tryggir áhrifaleysi er núll, - og hún er talan okkar í dag. Höfundur er viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í samtökunum Sjá. Heimildir og aðferð: Ráð Evrópusambandsins: reglur um aukinn meirihluta og aðrar atkvæðagreiðsluaðferðir. (Consilium) Werner Kirsch, International Economics and Economic Policy, 19, 401-409, 2022. DOI: 10.1007/s10368-022-00541-w. (Springer) Eurostat, Hagstofa Íslands og Statistisches Bundesamt: íbúatölur og stærstu borgir Þýskalands. (StatistischesBundesamt) Hvíta húsið, 7. janúar 2026: tilkynning um úrsagnir Bandaríkjanna úr alþjóðastofnunum, samningum og sáttmálum. (The WhiteHouse) Útreikningurinn byggist á nákvæmri talningu allra 2²⁸ mögulegra ríkjasamsetninga og var sannreyndur með Monte Carlo-hermun á fjórum milljónum slembisamsetninga. Claude Fable 5 var notað til að útbúa og keyra reiknikóðann, - sem reiknitæki en ekki heimild. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þýskaland Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar