Endurskoða sparkvöll við Landakot Agnar Már Másson skrifar 16. júlí 2026 16:10 Þessi teikning Landmótunar frá 2021 sýndi hverig völlurinn kynni að líta út. Þau áform verða nú endurskoðuð. Landmótun Borgarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að hverfa frá áformum í núverandi mynd um sparkvöll á Landakotstúni. Málinu hefur aftur verið vísað til umhverfis- og skipulagssviðs.
Til stóð á borgarráðsfundi í dag að afgreiða bréf umhverfis- og skipulagssviðs þar sem óskað var eftir að borgarráð heimilaði umhverfis- og skipulagssviði að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við nýjan sparkvöll á Landakotstúni. Aftur á móti var málinu vísað aftur til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs. Til hefur staðið að byggja fótboltavöll á túninu frá því að borgarráð samþykkti slík áform árið 2023 og hefur málið verið í ferli síðan þá. Umræða spannst um málið inni á Facebook-hópi miðbæjarbúa í júní þegar Andrés Jónsson almannatengill stakk niður penna og sagðist telja sparkvöllinn ekki bjóða upp á þá fjölbreyttu nýtingu sem hafi verið á blettinum síðustu ár, svo sem í lautarferðir, garðveislur og fleira. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, ýjaði þá að því í ummælum undir færslu Andrésar að endurskoða mætti áformin, sem voru samþykkt undir hans forystu í borgarráði. Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins segir að Landakotsskóli hafi um árabil leitað leiða til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar í nágrenni skólans og að meirihlutinn vilji mæta þeim óskum. „Á sama tíma þarf að huga að ásýnd og útfærslu á þessum fallega og sögulega reit á Landakotstúni. Meirihlutinn vísar því framkominni tillögu frá umhverfis- og skipulagssviði um sparkvöll til baka og biður um að farið verði í hóflegri útfærslu, bætt verði í gróður til mildandi áhrifa og skoðað verði að lækka girðingar og hafa völlinn í sömu stærð og hefðbundnir vellir í borginni. Með því verði áhyggjum íbúa í grenndinni mætt, sem einnig nýta Landakotstún. Þegar sú útfærsla er tilbúin verður málið unnið hratt og örugglega.“ Í fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir að sparkvöllurinn kosti um 70 milljónir króna. Teiknistofan Landmótun vann að hönnun og skipulagi á vellinum árið 2021. Tillaga um sparkvöll var fyrst lögð fram af Sjálfstæðismönnum í borgarstjórn 2018, en Sjálfstæðismenn eru nú í meirihlutasamstarfi með Framsókn og Viðreisn í höfuðborginni. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram bókun á fundinum þar sem sagði að þeir styddu nemendur og starfsfólk Landakotsskóla í að bæta aðstöðu skólans fyrir íþróttaiðkun. Nauðsynlegt væri að völlurinn yrði upphitaður svo að hann yrði aðgengilegur allan ársins hring. „Það er löngu tímabært að þessi völlur komi til framkvæmda eftir hátt í áratug í vinnslu. Á fyrri stigum hefur einnig verið rætt um endurnýjun leiksvæðisins á Landakotstúni og telur Samfylkingin það vera góða nýtingu á tíma og fjármunum að gera það á sama tíma og sparkvöllurinn verður settur upp. Mikilvægt er einnig að taka tillit til sjónarmiða nágranna um bestu útfærslu sparkvallarins og leiksvæðisins svo að Landakotstún verði áfram griðastaður fyrir fjölbreytta afþreyingu í gamla Vesturbæ.“
Reykjavík Fótbolti Borgarstjórn Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Slydda og snjókoma til fjalla Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira