„Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 15. júlí 2026 00:13 Nærri fjórðungur íslensku þjóðarinnar sýni skaðlegt neyslumynstur áfengis og tuttugu prósent landsmanna eigi við virkilegan áfengisvanda að stríða. Sjö prósent þjóðarinnar, 15 ára og eldri, hafi farið í meðferð við áfengisfíkn á Vogi, segir Láru G. Sigurðardóttur, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum. Samsett Læknir og doktor í lýðheilsuvísindum segist sjá svart á hvítu hver þróun Íslendinga í áfengismálum sé með tilkomu samfélagsmiðla og áhrifavalda. Búið sé að „normalísera neysluna“ og óskiljanlegt sé að dóm um netsölu áfengis sé ekki framfylgt.
Láru G. Sigurðardóttur, lækni og doktor í lýðheilsuvísindum, er búin að vinna að áfengisforvörnum í 15 ár en hún var til viðtals í Reykjavík síðdegis í dag. „Þetta er náttúrulega bara óskiljanlegt og algjörlega ekki til eftirbreytni. Ég hugsa bara: er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?,“ segir hún aðspurð um að ekki sé verið að framfylgja dómi sem bannar netsölu áfengis. “Eru þetta skilaboð sem við viljum senda? Já, þú bara brýtur lög og bara nógu margir fara að brjóta lög að þá ætlum við bara að reyna að breyta lögunum til að það verður ekki lengur ólöglegt. Hvaða skilaboð er verið að senda okkur?“ Lára segir lítið sem Læknasamtökin geti gert í málinu en boltinn sé hjá stjórnvöldum. Læknasamtökin hafi margsinnis gefið út bréf og yfirlýsingar en svo lengi sem vilji löggjafans til breytinga sé enginn gerist ekki neitt. Nærri fjórðungur íslensku þjóðarinnar sýni skaðlegt neyslumynstur áfengis og tuttugu prósent landsmanna eigi við virkilegan áfengisvanda að stríða. Sjö prósent þjóðarinnar, 15 ára og eldri, hafi farið í meðferð við áfengisfíkn á Vogi. „Hvert einasta mannsbarn þekkir einhvern í sinni fjölskyldu sem er með sjúkdóminn,“ segir Lára. „Það þykir bara alls staðar eðlilegt að fá sér áfengi“ Lára segir áfengisneyslu vera „normalíseraða“ í samfélaginu, sér í lagi með tilkomu samfélagsmiðla og áhrifavalda. „Maður opnar samfélagsmiðla og það er alls staðar. Þetta er bara: þú ferð í hádegismat, kvöldmat, þú ferð í veiðiferðina, þú veist, þú ferð í golf, klukkan 7 um morguninn á leið í flug, það þykir bara alls staðar eðlilegt að fá sér áfengi.“ Þar sem áfengi sé löglegt, algengt og félagslega viðurkennt þá hugsi fólk: „Já. Þetta hlýtur að vera bara allt í lagi og ekkert skaðlegt fyrir mig. Fyrst að hinir eru að gera þetta, af hverju geri ég það ekki?“ Afleiðingarnar sjáist hins vegar á Vogi og Bráðamóttökunni. Áfengi virki til skamms tíma eins og „hið fullkomna geðlyf.“ „Það losar serótónín, dópamín, endorfín, oxýtósín, öll þessi hormón sem við sækjumst eftir í daglegu lífi. En hvað gerist? Flestir vita hvað gerist bara eftir nokkra klukkutíma daginn eftir og ég tala nú ekki um vikur eða mánuði eftir. Þá fer heilinn að breyta sér og fækka viðtökum fyrir öllum þessum hormónum þannig að okkur fer allt að líða verr og verr og verðum bara óhamingjusamari og kvíðnari,“ segir Lára. Níutíu prósent hegðunar fólks sé keyrð áfram á undirmeðvitundinni og fólk eigi það til að gera hlutina bara nákvæmlega eins og það er vant að gera þá. „Við erum ekkert alltaf að hugsa dagsdaglega, já, hvaða áhrif hefur þetta á mig, hvernig líður mér?“ „Það er engin hófdrykkja“ Fræðsla um áfengisneyslu hafi breyst á undanförnum árum. Fyrir tíu áru hafi hún sagt „að fá sér fyrir konu, eitt glas á dag en tvö glös á dag fyrir karlmann er svona nokkuð öruggt.“ Nú sé vitað að það sé of mikið. „Það eru engin mörk örugg fyrir krabbameinsáhættu og það er línulegt samband, þannig að því meira sem þú drekkur, því meiri verður áhættan.“ Tvö hundruð sjúkdómar og áverkar séu beintengdir við áfengisneyslu oghófdrykkja sé því í raun og veru ekki til.
Áfengi Netverslun með áfengi Samfélagsmiðlar Heilsa Heilbrigðismál Tengdar fréttir „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Dómsmálaráðherra segir engar breytingar sem lúta að netsölu með áfengi vera í skoðun hjá ríkisstjórninni. Ef niðurstaða Landsréttar staðfesti það að netsalan sé ólögleg vænti hún þess að lögreglan bregðist við. 14. júlí 2026 12:30 Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Óskiljanlegt er að netsala áfengis þenjist út eftir að fallinn er dómur um að hún sé ólögleg. Þetta segir fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins sem kallar jafnframt eftir því að starfsemin verði stöðvuð strax og að ríkisstjórnin tali skýrt í málinu, sem sé henni til vansa. 13. júlí 2026 22:01 „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Forvarnarsamtök fordæma ummæli aðstoðarlögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og að lögreglan hafi ekki lokað sölustöðum áfengisnetverslana eftir að sala Smáríkisins var dæmd ólögleg. 12. júlí 2026 21:40 Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Fleiri fréttir Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Sjá meira
„Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Dómsmálaráðherra segir engar breytingar sem lúta að netsölu með áfengi vera í skoðun hjá ríkisstjórninni. Ef niðurstaða Landsréttar staðfesti það að netsalan sé ólögleg vænti hún þess að lögreglan bregðist við. 14. júlí 2026 12:30
Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Óskiljanlegt er að netsala áfengis þenjist út eftir að fallinn er dómur um að hún sé ólögleg. Þetta segir fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins sem kallar jafnframt eftir því að starfsemin verði stöðvuð strax og að ríkisstjórnin tali skýrt í málinu, sem sé henni til vansa. 13. júlí 2026 22:01
„Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Forvarnarsamtök fordæma ummæli aðstoðarlögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og að lögreglan hafi ekki lokað sölustöðum áfengisnetverslana eftir að sala Smáríkisins var dæmd ólögleg. 12. júlí 2026 21:40