Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. júlí 2026 09:00 Kinu Rochford lét mikið að sér kveða er hann lék með Þór Þ. tímabilið 2018-19. vísir/bára Halldór Garðar Hermannsson segir að það hafi verið áfall að frétta andlát Kinus Rochford, fyrrverandi samherja síns hjá Þór Þorlákshöfn. Hann segir hann einn eftirminnilegasta leikmann sem hann hafi spilað með.
Rochford var skotinn til bana þegar hann var að spila körfubolta í Harlem í New York á föstudaginn. Hann var 35 ára þegar hann lést. „Manni brá náttúrulega bara. Þetta var alveg hræðilegt og maður fer bara að hugsa um fjölskylduna hans. Það var alveg glatað að heyra þetta,“ sagði Halldór Garðar í samtali við Vísi. Hann lék með Rochford heitnum hjá Þór tímabilið 2018-19. Liðið endaði í 6. sæti deildarinnar og sló Tindastól úr leik í eftirminnilegri rimmu í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar, 3-2. Í undanúrslitunum tapaði Þór fyrir KR, 3-1. Rochford var öflugur leikmaður en ekki síður litríkur karakter sem setti svip sinn á deildina hér heima. Hann var víðförull en auk þess að spila á Íslandi lék hann í Hollandi, Frakklandi, Kósovó, Ísrael, Englandi og Sviss. Rochford lék tvö ár með Globe Tech háskólanum og tvö ár með Farleigh Dickinson. Auk þess að spila með Þór spilaði hann til skamms tíma með Hamri í Hveragerði. Var enn að spila Halldór Garðar segist ekki hafa verið í miklu sambandi við Rochford eftir að leiðir skildu vorið 2019 en hann fylgdist þó með honum í gegnum samfélagsmiðla. „Það var aðallega ef maður sá eitthvað á Instagram. Hann bjó bara í New York og var að vinna þar og var ennþá að spila körfu, ekki sem atvinnumaður en var eitthvað að sprikla allavega,“ sagði Halldór Garðar. Halldór Garðar Hermannsson er nýgenginn aftur í raðir Þórs Þ. eftir nokkur ár hjá Keflavík.vísir/bára Hann lýsir Rochford sem fjörugum og hvetjandi einstaklingi. „Hann er einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði. Það var alltaf þvílíkt líf og fjör í kringum hann. Hann var skemmtilegur karakter, mjög drífandi og gaman að vera í kringum hann. Það er mjög leiðinlegt að hann hafi kvatt svona ungur,“ sagði Halldór Garðar. Gaf mikið af sér Hann segir að Rochford hafi smollið vel inn í samfélagið í Þorlákshöfn. „Hann var ótrúlega góð viðbót í samfélagið í Þorlákshöfn. Við vorum að þjálfa saman 10-11 ára krakka. Hann gaf alveg ótrúlega mikið af sér og var hérna bara alltaf tilbúinn að koma og dæma ef það vantaði eitthvað svoleiðis. Hann var mjög opinn karakter og drífandi,“ sagði Halldór Garðar. Rochford í baráttu við Julian Boyd í leik Þórs og KR í undanúrslitum vorið 2019.vísir/vilhelm Rochford tók flest fráköst allra í deildinni tímabilið 2018-19 (12,2) en skilaði einnig 19,1 stigi og 3,9 stoðsendingum. Halldór Garðar segir að það hafi verið gott að spila með Rochford sem hafi gert samherja sína betri. „Hann var mjög óeigingjarn og mjög góður sendingamaður, með frábæra vinstri hönd sem var erfitt að stoppa. Hann var mjög viljugur að senda boltann og góður í því. Þannig að ef maður fann hann og hreyfði sig vel í kringum hann var hann alltaf að fara að verðlauna mann til baka,“ sagði Halldór Garðar. Hvetjandi sama á hverju gekk Tímabilið 2018-19 var mjög eftirminnilegt hjá Þór en endurkoma liðsins í frægum oddaleik gegn Stólunum á Sauðárkróki gleymist seint. „Hann var náttúrulega risapartur af þessu með sínum óeigingjarna leikstíl. Hann var alltaf tilbúinn að hvetja mann áfram, sama hvernig gekk, og það var ótrúlegt hvað við vorum oft tuttugu stigum undir eða eitthvað og svo kom þvílík endurkoma,“ sagði Halldór Garðar. Rochford var þekktur fyrir sósufagnið sitt en hann þóttist þá hræra í sósupotti. Halldór Garðar kann þó ekki söguna á bak við fagnið. „Nei, en hann kallaði sig stundum kokkinn Kinu. Þetta var einhver brandari hjá honum. Hann var mikið að hræra í sósunni,“ sagði Halldór Garðar að lokum.
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Sjá meira