Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. júlí 2026 07:15 Milljónir hafa safnast saman í borgum Íran til að heiðra minningu leiðtogans Ali Khamenei. Þá hafa margir notað tækifærið til að sýna óbeit sína á Bandaríkjunum og Ísrael. Getty/Kaveh Kazemi Bandaríkjaher hélt áfram árásum á Íran í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að tímabundið vopnahlé væri úr sögunni. Samkvæmt írönskum miðlum heyrðust sprengingar í hafnarborgunum Bandar Abbas og Sirik, auk þess sem gerðar voru árásir á skotmörk í Bushehr héraði, þar sem er að finna kjarnorkuinnviði.
Trump sagði á Truth Social að um væri að ræða framhald hefndaraðgerða vegna árása Írana á flutningaskip á Hormuz-sundi og að ef Íranir gerðu frekari árásir á skip á sundinu myndu Bandaríkjamenn svara af enn meiri krafti. Þá sagði forsetinn við blaðamenn um borð í Air Force One, að hann væri ekki sannfærður um að Íranir væru menn orða sinna og myndu standa við mögulegan samning. Íranir svöruðu fyrir árásirnar í gær með árásum á skotmörk í Barein og Kúveit í nótt. Mohammad Bagher Ghalibaf, forseti þingsins, sagði á samfélagsmiðlum í gær að Bandaríkjamenn hefðu ekki enn lært þá lexíu að þeir kæmust ekki lengur upp með það að sýna yfirgang og brjóta loforð. Þrátt fyrir vopnahlé hafa samningsaðilar ekki náð saman um fjölda atriða, meðal annars Hormuz-sund. Bandaríkjamenn vilja óhindraða umferð um sundið á meðan Íranir hyggjast koma á gjaldskyldu. Umferð um sundið stendur í um þrjátíu skipum á dag, eftir að átök brutust aftur út. Fyrir um viku voru 70 skipa að sigla þar daglega en fyrir árásir Bandaríkjamanna og Ísrael töldu þau um 130.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira