Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júlí 2026 12:31 Víkingur fer með eins marks forskot til Ungverjalands. vísir/diego Mark Nikolajs Hansen á annarri mínútu uppbótartíma tryggði Íslandsmeisturum Víkings sigur á Ungverjalandsmeisturum Györ í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Lykilmaður Víkings varð fyrir meiðslum í leiknum.
Víkingar voru sterkari aðilinn í leiknum í Víkinni í gær en brutu ekki ísinn fyrr en í uppbótartíma. Nikolaj skallaði þá boltann í netið af örstuttu færi eftir að Samuel Petras varði skalla Óskars Borgþórssonar. Klippa: Víkingur - Györ 1-0 Nikolaj kom inn á sem varamaður undir lok fyrri hálfleiks fyrir Elías Má Ómarsson sem meiddist. Keflvíkingurinn var sárþjáður og óttast er að meiðslin séu alvarleg. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sagði að gervigrasið í Víkinni hefði valdið meiðslum Elíasar og baunaði á Reykjavíkurborg í viðtali eftir leikinn. „Meiðslin hjá Elíasi Má settu svartan blett á annars frábært kvöld. Elías Már festir takkana í gömlu og handónýtu gervigrasi sem okkur er boðið upp á hér í Víkinni. Við erum nýbúin að missa leikmann í kvennaliðinu okkar í krossbandsmeiðsli og aðstaðan á þessum velli er til háborinnar skammar,“ sagði Sölvi við Vísi í leikslok. „Þetta gervigras er löngu komið á tíma og Reykjavíkurborg þarf að hysja upp um sig buxurnar. Víkingur er þessa stundina flaggberi Íslands í fótbolta í Evrópu og það er skandall að við séum að spila á jafn lélegum, og í raun hættulegum, velli og raun ber vitni. Það er ekki boðlegt hvernig aðstaðan er hérna í Víkinni.“ Elías kom til Víkings fyrir tímabilið. Hann er markahæstur í Bestu deildinni ásamt Aroni Sigurðarsyni, fyrirliða KR. Þeir hafa báðir skorað tólf mörk. Seinni leikur Víkings og Györ fer fram í Ungverjalandi næsta þriðjudag. Markið úr leiknum í gær og meiðsli Elíasar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Víkingur fór með 1-0 sigur af hólmi þegar liðið fékk ungverska liðið Gyori ETO í heimsókn í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla á Heimavöll hamingjunnar í Fossvoginum í kvöld. 7. júlí 2026 20:56 Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Víkingur fór með 1-0 sigur af hólmi þegar liðið fékk ungverska liðið Gyori ETO í heimsókn í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla á Heimavöll hamingjunnar í Fossvoginum í kvöld. 7. júlí 2026 20:56