Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Tómas Arnar Þorláksson skrifar 7. júlí 2026 20:32 Árni Guðmundsson forvarnarsérfræðingur gagnrýnir það harðlega að ekki sé brugðist við umræddum auglýsingum. Stjórnvöld hafi brugðist. Samsett Áfengisauglýsingar á samfélagsmiðlum og í hlaðvörpum hjá áhrifavöldum og öðrum opinberum persónum hafa aukist til muna undanfarin ár. Forvarnarsérfræðingur segir stjórnvöld hafa brugðist og kallar eftir því að áhrifavaldar axli ábyrgð.
Áfengisauglýsingar á ýmsum miðlum líkt og þær sem má sjá í spilaranum hér að neðan hafa aukist til muna á samfélagsmiðlum og í hlaðvörpum hjá áhrifavöldum og öðrum opinberum persónum á ýmsum vettvöngum. Þessar auglýsingar standa óáreittar á hinum ýmsu miðlum þrátt fyrir blátt bann gegn þeim í íslenskum lögum. Þetta kemur skýrt fram í reglugerð þar sem segir að bannað sé að sýna hvers kyns neyslu eða meðferð áfengis í auglýsingaskyni og er vísað til áfengislaga. Vill að áhrifavaldar axli ábyrgð Formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum og forvarnarsérfræðingur segist hafa tekið eftir verulegri aukningu áfengisauglýsinga á þessu ár en samtökin hafa tilkynnt 900 atvik til lögreglu síðustu ár að hans sögn. „Það er alveg greinilega aukning og það sem er verra í þessu er að þetta er eiginlega allt beint gagnvart börnum og ungmennum sem er náttúrulega alls ekki gott. Við erum með ákveðin lög um bann gegn áfengisauglýsingum og einhvenrg veginn komast menn upp með það að brjóta þau statt og stöðugt.“ Hann gagnrýnir það harðlega að ekki sé brugðist við umræddum auglýsingum. Stjórnvöld hafi brugðist. „Allir þessir samfélagsmiðlar segjast virða lögin í hverju landi fyrir sig en gera það svo ekki í raun. Það virðist ekki vera nein áhersla á því að taka á þessum málum og það er dálítið alvarlegt. Þau sem eru áhrifavaldar verða að axla ábyrgð. Þeir verða að vita hvaða ábyrgð þeir bera. Ef þú ert áhrifavaldur sem ert að fá fullt af pening frá einhverjum áfengisframleiðanda fyrir að vera boðflenna með áfengi í veislu hjá litlum börnum þá erum við komin á einhvern stað sem er ekki góður.“ Vill samræma eftirlit Lögreglan sinnir eftirliti með áfengisauglýsingum á samfélagsmiðlum en Fjölmiðlanefnd sinnir því þegar það kemur að hlaðvörpum, sjaldan sé gripið inn í. Framkvæmdastjóri nefndarinnar segir í samtali við fréttastofu að fjölmargar kvartanir hafi borist og að þó nokkur mál séu til skoðunar. „Ég held að það sé rosalega mikilvægt að gæta jafnræðis í þessum efnum, þannig að það gildi það sama um alla aðila. Það er náttúrulega líka mjög óréttlátt fyrir fjölmiðla ef það er svona mikið gap í því hvernig eftirlitinu er háttað. Eins og til dæmis með nikótín auglýsingar, þá eru þær undir eftirliti hjá Neytendastofu en það sama gildir ekki um áfengisauglýsingar. Það væri mjög gott ef það væri einhver samræm nálgun hvað þetta varðar,“ segir hún og heldur áfram: „Ég held að þetta sé alltaf eitthvað mat á því hvernig á að hafa eftirlit og þarna togast á sjónarmið sem eru annars vegar lýðheilsusjónarmið og hins vegar sjónarmið um frjálsa verslun. Það væri hins vegar mjög gott ef það væri einhvers konar samræmt eftirlit með þessum miðlum þannig að það væri það sama sem myndi ganga yfir alla.“
Hlaðvörp Áfengi Samfélagsmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Erlent Fleiri fréttir Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Sjá meira