Engum verkefnum útvistað og ekki greitt fyrir ráðgjöf Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. júlí 2026 10:41 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur svarað fyrirspurn Samfylkingar. Vísir/Lýður Valberg Fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um tilhögun upplýsingamála hjá borginni í kjölfar uppsagna var svarað munnlega á borgarráðsfundi í gær. Þá hafa þeim nú borist skrifleg svör frá Hildi Björnsdóttur borgarstjóra.
Þar kemur meðal annars fram að samið hafi verið við tvo starfsmenn úr því samskiptateymi sem lagt var niður til að starfa til áramóta. Þá mun uppsagnafrestur þeirra taka gildi en þangað til verða þau innan handar við miðlun. „Við munum á næstu misserum kynna nýtt og skilvirkara fyrirkomulag,“ segir Hildur í svörunum. Að öðru leyti hafi borgarstjóri með aðstoð starfsfólks haldið utan um upplýsingamál. Engir hafi verið ráðnir aftur og þá sé ekki búið að útvista neinum verkefnum á skrifstofu borgarstjóra. Nýr meirihluti hafi ekki keypt þjónustu ráðgjafa- eða samskiptastofu eftir að hann tók við. Hér fyrir neðan má finna spurningarnar og svörin í heild: 1. Hvaða þjónustu mun velferðarsvið fá, frá miðlægu teymi, þegar upplýsingafulltrúa velferðarsviðs sem starfaði á skrifstofu borgarstjóra hefur verið sagt upp? Samið hefur verið við tvo starfsmenn úr fyrra samskiptateymi að starfa til áramóta fram að uppsagnarfresti og eru þau sviðum innan handar við miðlun. Við munum á næstu misserum kynna nýtt og skilvirkara fyrirkomulag. 2. Hvernig hafa upplýsingamál verið leyst, á skrifstofu borgarstjóra, frá því að upplýsingafulltrúum var sagt upp störfum? Samið hefur verið við tvo starfsmenn úr fyrra samskiptateymi að starfa til áramóta fram að uppsagnarfresti og verða þau innan handar við miðlun. Að öðru leyti hefur borgarstjóri með aðstoð starfsfólks skrifstofunnar haldið um upplýsingamál meðan unnið er að nýju fyrirkomulagi. 3. Hafa einhverjir upplýsingafulltrúar verið ráðnir aftur og hvað réði því? Hver voru fagleg sjónarmið og ferillinn við mat á því hvaða upplýsingafulltrúa ætti að ráða aftur? Nei. 4. Er þegar búið að útvista einhverjum verkefnum á skrifstofu borgarstjóra? Er búið að semja við einhverja tiltekna stofu? Ef já, hvaða stofu og hver er kostnaðurinn? Ef ekki, verður farið í útboð? Nei. 5. Hefur nýr meirihluti þegar keypt þjónustu ráðgjafa- eða samskiptastofu frá því að nýr meirihlutinn tók við? Nei.
Reykjavík Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Sjá meira