„Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Freyja Þórisdóttir skrifar 25. júní 2026 21:25 Kári Sigurðsson, formaður stéttarfélagsins Sameykis, segist hafa verulegar áhyggjur af framhaldinu í kjölfar hópuppsagnarinnar. SÝN Ríflega helmingur þeirra sem sagt var upp störfum hjá Reykjavíkurborg í dag, fimmtudaginn 25. júní, eru í stéttarfélaginu Sameyki. Var félaginu tilkynnt fyrirfram um uppsagnirnar en formaður félagsins segir mjög þungt í fólki hljóðið. Þá segir hann að horfa þurfi aftur til ársins 2010 til þess að rifja upp svipaða hópuppsögn hjá borginni.
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var gestur í kvöldfréttum Sýnar í kvöld, fimmtudaginn 25. júní, en hann segir andrúmsloftið hafa verið gríðarlega þungt í ráðhúsinu í dag er átján starfsfólki á skrifstofu borgarinnar var sagt upp samtímis. Tímasetningin komi helst á óvart „Það var bara gríðarlega þungt yfir starfsfólkinu sem maður hitti, en ég var auðvitað bara í anddyrinu. Maður getur ekki sett sig í spor starfsfólksins sem var þarna innandyra,“ segir Kári og bætir við að „þetta hefur bæði verið áfall auðvitað fyrir allt fólkið sem er á skrifstofunni og sérstaklega fyrir þau sem að var tilkynnt um uppsögn í dag.“ Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, sagði í samtali við fréttamann Sýnar á fimmta tímanum í dag að niðurskurðurinn hefði verið viðbúinn. Kári tekur undir það en segist aðallega furða sig á tímasetningunni. Er þetta samt eitthvað sem kemur ykkur á óvart, þ.e.a.s. umfang þeirra sem missa vinnuna í dag? „Ég get kannski ekki sagt að þetta komi mér á óvart, þessar aðgerðir, þau töluðu mikið um þetta í aðdraganda kosninganna. Tímasetningin kemur mér kannski á óvart. Það er ansi stutt síðan þau, meirihlutinn, tók við og ég svona velti fyrir mér hversu vel ígrundaðar þessar ákvarðanir eru,“ segir Kári. Hefur miklar áhyggjur af framhaldinu Hann segist ekki muna eftir öðru eins í borginni síðasta áratuginn og telur í fljótu bragði að hópuppsagnir árið 2010 komi næst því að vera í líkingu við þessar í dag. „Svona í fljótu bragði þá þarf maður kannski að fara til ársins 2010, þegar hópuppsagnirnar í Orkuveitunni voru, til þess að horfa á eitthvað, en þá er það önnur stærðargráða, meiri heldur en er í dag. En þetta er auðvitað grafalvarlegt, sérstaklega í ljósi stöðunnar í samfélaginu í dag,“ segir Kári. Hann segist jafnframt hafa verulegar áhyggjur af framhaldinu, ekki einungis fyrir félagsfólk Sameykis heldur samfélagið allt, og veltir því upp hvort það hafi verið rangt að lesa það á milli línanna í kosningabaráttunni í vor að bæta ætti við grunnþjónustu borgarinnar. „Hildur kemur inn á það að hún sé að fara að verja grunnþjónustuna. Maður svona hélt að maður hefði lesið á milli línanna í þessari kosningabaráttu að það ætti að bæta ef eitthvað væri við grunnþjónustuna, þannig að ég hefði nú haldið þá að þessar skipulagsbreytingar myndu þá fela í sér að það yrði bætt við í grunnþjónustunni, en miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur.“
Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Vinnumarkaður Borgarstjórn Kjaramál Stéttarfélög Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira