Stytting hringvegarins sú næstmesta á þessari öld Kristján Már Unnarsson skrifar 24. júní 2026 22:24 Nýja leiðin yfir Hornafjörð opnuð. Gauti Árnason, formaður bæjarráðs Hornafjarðar, Ragnar Þór Ingólfsson, starfandi innviðaráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri klippa á borðann. KMU Ný brú yfir Hornafjarðarfljót var opnuð í dag. Hringvegurinn styttist um tólf kílómetra og leiðin milli Reykjavíkur og Hafnar um næstum fimmtán kílómetra. Vegamálastjóri sagði í ávarpi við brúarvígsluna að slík stytting hefði ekki orðið á hringveginum frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð árið 1998.
Í kvöldfréttum Sýnar var sýnt frá vígslu nýs þjóðvegar þvert yfir Hornafjörð. Mannfjöldi mætti til að fylgjast með borðaklippingu, ræðuhöldum og kórsöng en athöfnin fór fram á nýju Hornafjarðarfljótsbrúnni. Hún er 250 metra löng og lengst fjögurra brúa á nýja vegarkaflanum en alls voru um átján kílómetrar lagðir af nýjum vegum. Athugasemd: Eftir að fréttin var birt hefur borist ábending um að með opnun Vaðlaheiðarganga í lok árs 2018 hafi hringvegurinn styst um sextán kílómetra. Það sé mesta stytting hringvegarins frá opnun Hvalfjarðarganga. Þau sem klipptu á borðann voru Ragnar Þór Ingólfsson, starfandi innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri og Gauti Árnason, formaður bæjarráðs Hornafjarðar. Svo skemmtilega vildi til að skærin sem ráðherrann notaði voru einnig notuð árið 1961 við vígslu fyrri brúarinnar yfir Hornafjarðarfljót. Vörubíll frá árinu 1956 var fyrsti bíllinn til að aka yfir brúna eftir að hún var formlega opnuð. Sami trukkur var einnig notaður við vegagerð vegna fyrri brúarinnar yfir Hornafjarðarfljót árið 1961.Egill Aðalsteinsson Að borðaklippingunni lokinni ók fyrsti bílinn formlega yfir brúna. Það var vörubíll af Ford-gerð, árgerð 1956. Hann hafði einnig verið notaður í vegagerð sem fylgdi brúarsmíðinni árið 1961 og kom frá bænum Svínafelli í Nesjum í Hornafirði. Við vígsluathöfnina fengu gestir að hlýða á söng Kvennakórs Hornafjarðar. Konurnar hafa vakið athygli í héraði fyrir að syngja burt einbreiðu brýrnar. Núna tókst þeim að syngja þrjár þeirra burt. Kvennakór Hornafjarðar syngur einbreiðu brýrnar burt.Egill Aðalsteinsson Rætt var við borðaklipparana í sjónvarpsfrétt Sýnar en einnig við Karl Andreassen, forstjóra Ístaks, verktakans sem annaðist verkið, en það kostaði alls um tíu milljarða króna. Einnig má heyra brot af kórsöngnum hér í myndskeiðinu: Vegurinn um Hornafjörð er fyrsta verkefnið sem lokið er við á grundvelli laga um samvinnuverkefni. Það þýðir að innheimt verður veggjald af vegfarendum. Gjaldtakan hefst þó ekki fyrr en 1. september í haust en fram að því verður ókeypis að aka um veginn. Stakt gjald fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum verður 1.500 krónur, 2.100 krónur fyrir millistóra bíla frá 3,5 til 7,5 tonnum og 4.500 krónur fyrir bíla yfir 7,5 tonnum. Afsláttarkjör verða fyrir litla og millistóra bíla og þak sett á mánaðarlegar greiðslur. Horft yfir nýju Hornafjarðarfljótsbrúna í átt til Mýra. Fláajökull, einn af skriðjöklum Vatnajökuls, sést fjær.Egill Aðalsteinsson Hér að neðan má sjá verkefni Vegagerðarinnar í sumar. Sumarvegaframkvæmdir Skrunið inn og smellið á fletina til að sjá upplýsingar um verkefnin.
Sveitarfélagið Hornafjörður Vegagerð Veggjöld Samgöngumál Byggingariðnaður Umferðaröryggi Tengdar fréttir Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum. 26. júní 2024 23:00 Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu Vegagerðin og Ístak hafa skrifað undir 6,3 milljarða króna verksamning um gerð nýs vegar þvert yfir Hornafjörð, sem styttir hringveginn um tólf kílómetra. Samningurinn markar tímamót því hann er sá fyrsti á grundvelli laga um samvinnuverkefni, en í því felst einkafjármögnun og að vegfarendur greiði vegtoll. 18. júlí 2022 18:51 Breytt fjármögnun lækkaði tilboð í Hornafjörð um 2,2 milljarða króna Lægsta boð í lagningu nýs hringvegar um Hornafjörð lækkaði um 2,2 milljarða króna við það að langtímafjármögnun var undanskilin. Þrátt fyrir hökt í þessu fyrsta útboði verkefna í einkafjármögnun telur innviðaráðherra að annað verk í ferlinu, ný Ölfusárbrú, verði á áætlun og tilbúin árið 2025. 19. maí 2022 21:25 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira
Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum. 26. júní 2024 23:00
Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu Vegagerðin og Ístak hafa skrifað undir 6,3 milljarða króna verksamning um gerð nýs vegar þvert yfir Hornafjörð, sem styttir hringveginn um tólf kílómetra. Samningurinn markar tímamót því hann er sá fyrsti á grundvelli laga um samvinnuverkefni, en í því felst einkafjármögnun og að vegfarendur greiði vegtoll. 18. júlí 2022 18:51
Breytt fjármögnun lækkaði tilboð í Hornafjörð um 2,2 milljarða króna Lægsta boð í lagningu nýs hringvegar um Hornafjörð lækkaði um 2,2 milljarða króna við það að langtímafjármögnun var undanskilin. Þrátt fyrir hökt í þessu fyrsta útboði verkefna í einkafjármögnun telur innviðaráðherra að annað verk í ferlinu, ný Ölfusárbrú, verði á áætlun og tilbúin árið 2025. 19. maí 2022 21:25