Neytendur

Taka ekki upp gjald­skyldu við Kringluna

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ekki verður tekin upp gjaldskylda við Kringluna líkt og í Smáralind.
Ekki verður tekin upp gjaldskylda við Kringluna líkt og í Smáralind. Aðsend og Vísir/Anton Brink

Ekki stendur til að taka upp gjaldskyldu á bílastæði við Kringluna líkt og ákveðið hefur verið að gera við verslunarmiðstöðina Smáralind. Markaðsstjóri Kringlunnar segir meiri aðsókn í verslunarmiðstöðina en bílastæðaskortur sé ekki sérstakt vandamál.

„Þetta hefur verið til umræðu en það stendur ekki til að rukka fyrir bílastæði Kringlunnar. Við finnum ekki fyrir því að þetta sé vandamál en finnum fyrir aukinni aðsókn í húsið. Það er búin að vera mikil aukning í húsið,“ segir Unnur María Pálmadóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, og að aðsókn sé til dæmis tólf prósentum meiri en í júní í fyrra.

„Það eru skólar í kring og húsnæði og við finnum almennt fyrir meiri umferð í húsið. Það er aukin aðsókn og þá eru færri laus bílastæði. En þetta hefur ekki verið vandamál hjá okkur,“ segir Unnur í samtali við fréttastofu.

Fjallað var um málið í fréttum í gær en þar kom fram að gjaldskyldan muni bara taka gildi ef lagt er við Smáralind lengur en í fjóra klukkutíma. Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, sagði í kvöldfréttum Sýnar að það hefði átt sér stað mikil uppbygging í kringum verslunarmiðstöðina og það væri aukin aðsókn í bílastæðin.

Fram kom í frétt um gjaldskyldu í Smáralind að innheimtar yrðu 450 krónur á klukkustund að fjórum klukkustundum liðnum á bílastæðinu. Fólk ætti til dæmis að geta farið út að borða og í bíó á þessum fjórum klukkustundum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×