„Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. júní 2026 22:34 Lárus Orri Sigurðsson var ánægður með margt í leik sinna manna. Vísir / Anton Brink Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var svekktur, en þó stoltur af sínum mönnum, eftir 5-3 tap gegn KR í Bestu-deildinni í kvöld. „
Þessi leikur leit þannig út að mér fannst við vera mun sterkari aðilinn í byrjun fyrri hálfleiks. Mér fannst við koma mjög sterkt inn í leikinn og voru betri fyrstu kannski 20-25 mínúturnar, en eftir það hleyptum við þeim aðeins of mikið inn í leikinn,“ sagði Lárus í leikslok. „Við stigum aðeins of mikið af þeim og þeir náðu að spila einum of mikið inn í millisvæðin, finna leikmenn þar og koma sér í góð svæði. Í seinni hálfleik náðum við að laga það og mér fannst við vera með fína stjórn á þessu og í góðum málum, sem er kannski svolítið asnalegt að segja miðað við þessi mörk sem við fengum á okkur. Ég held að á endanum hafi þessi leikur oltið þeirra megin vegna þess að þeir nýttu færin sem þeir fengu en ekki við. Ég held að ef þú kíkir á xG-tölur þá verði áhugavert að skoða þær. Ég held að þær endurspegli ekki 5-3 leik.“ Þá segist hann hafa viljað sjá sína menn halda sama orkustigi og í byrjun leiks lengur en liðið gerði. „Að sjálfsögðu. Þetta var okkar plan, að stíga upp á þá, og við vorum með þá alveg fasta uppi og það gekk vel. En það er erfitt að gera það í 90 mínútur. Þegar þeir komu út vorum við bara ekki alveg nógu klókir að pikka upp leikmenn í millisvæðunum og þeir voru að finna sendingarnar allt of auðveldlega. Við löguðum það í hálfleik og í seinni hálfleik þegar þeir voru með boltann og við sátum til baka og ekki í pressu fannst mér þeir langtímum saman ekkert ónáða okkur. Svo koma þessi mörk sem við fáum á okkur sem voru alls ekki nógu góð, en við fengum líka dauðafæri undir lokin og hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig.“ Lárus segir þó að liðið geti tekið ýmislegt jákvætt úr þessum leik þrátt fyrir tapið. „Það er hellingur af jákvæðum punktum. Ég var stoltur af mínu liði og stoltur af því að menn gáfu sig hundrað prósent í þetta. Við skoruðum þrjú mörk, en samt, eins og í svo mörgum öðrum leikjum í sumar þá hefðum við átt að skora fleiri.“ Að lokum segist hann ekki ætla að dvelja of lengi við þennan leik og fara að einbeita sér að næsta verkefni þar sem ÍA tekur á móti Fram eftir slétta viku. „Nú er bara þessi leikur búinn og við förum yfir hann og greinum hann. Svo förum við bara að undirbúa okkur undir Fram og það er allt, allt öðruvísi dæmi,“ sagði Lárus að lokum.
Íslenski boltinn Besta deild karla KR ÍA Mest lesið „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Sport Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Enski boltinn „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ Handbolti „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Með fullt hús stiga eftir níu marka veislu Fótbolti Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Valur bætti vörnina úr síðasta leik Handbolti „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Handbolti Fleiri fréttir Mun saga Arons endurtaka sig? Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Með fullt hús stiga eftir níu marka veislu Birta upptöku sem sannar kynþáttaníð gegn Mikael „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Eiginkona og sonur vitni að grófri árás sjö stuðningsmanna FCK „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Svona er hópurinn: Ísak Snær, Rúnar Alex og Arnór með Arnar kynnti nýjasta hópinn og mætti í spjall Rekinn eftir aðeins fjóra leiki í starfi Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Efnilegastur í Bandaríkjunum: Slær Freddy Adu við Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Handbolti
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Handbolti